Belgíska rokksveitin dEUS mun stíga á svið í Austurbæjarbíó þann 2. október næstkomandi og flytja efni af fyrstu tveim plötum sveitarinnar, Worst Case Scenario (1994) og In a Bar, Under the Sea (1996).
Tónleikarnir eru hluti af sérstakri tónleikaferð sem ber heitið Worst Case Versus In A Bar og hefur dEUS ferðast til útvaldra borga í Evrópu það sem af er ári. Reykjavík er síðasti viðkomustaðurinn á þessu tónleikaferðalagi.
Á dagskránni verða helstu lög platnanna, auk laga sem hafa aldrei áður verið flutt á tónleikum. Þetta er ekki aðeins nostalgíuferð, heldur endurvakning tveggja platna sem hljóma enn jafn ferskar, kraftmiklar og tímalausar og þegar þær komu út.
dEUS eru: Tom Barman, Klaas Janzoons, Stephane Misseghers, Alan Gevaert og Simen Følstad Nilsen.
Hljómsveitin Ensími mun sjá um upphitun en hún fagnar 30 ára starfsafmæli á þessu ári.
Miðasala hefst 20. ágúst kl. 10:00 hjá Midix.is og er miðaverði stillt í hóf.
HVAÐ: dEUS flytur Worst Case Versus In A Bar. Ensími hitar upp.
HVAR: Austurbæjarbíó.
HVENÆR: Föstudaginn 2. október 2026.