Fókus

Lýsir blautum kossi þeirra Tom - Klipptur út úr stórmyndinni

Mynd
Taron Egerton.

Árið 2015 léku leikararnir Tom Hardy og Taron Egerton saman í myndinni Legend. Sá fyrrnefndi lék hlutverk tvíburaglæpamannanna Reggie og Ronnie Kray, og Egerton lék hlutverk elskhuga Ronnie, Teddy Smith.

Egerton segir í viðtali við Dax Shepard í hlaðvarpinu Armchair Expert samstarfið hafa gengið vel og þeim Hardy komið vel saman. Egerton sagði einnig frá „spunasenu“ sem klippt var úr lokagerð myndarinnar.

„Það var atriði sem komst aldrei í myndina, en ég var svo ánægður með sjálfan mig. Það var atriði þar sem hann myrðir einhvern og sest aftur inn í bílinn og ég sat aftast í bílnum og beið eftir honum og greip í andlitið á honum og gaf honum blautan koss.“

Egerton sagðist síðan hafa dregið sig til baka frá Hardy, hræddur við viðbrögð hans, en bætti við: „Ég held að honum hafi þótt kossinn frábær.“

Félagarnir hafa ekki hist síðan eða í tíu ár, en Egerton segist halda að Hardy hafi líkað „chutzpah“ hans. Hugtakið chutzpah þýðir sjálfstraust eða kjarkur.

Í hlaðvarpinu sagði Egerton að leikstjórinn, Brian Helgeland, hefði veirð pinn fyrir því að leikararnir myndu spila spuna, þess vegna kom þessi „djarfa“ sena til.

Mynd
Ton Hardy í hlutverki sínu í Legends.

Þegar Egerton var spurður hvort hann hefði verið „hræddur“ við að vinna með Hardy sagði hann alls ekki að svo væri. „Ég er með allt mitt óöryggi og allan minn ótta, en eitt sem ég hef ekki áhyggjur af er að ég trúi á sjálfan mig sem leikara,“ sagði Egerton.

Þrátt fyrir að hafa aðeins unnið saman í þetta eina skipti tengjast Egerton og Hardy báðir ævisögulegri söngleikjamynd Sir Elton John frá árinu 2019, Rocketman. Upphaflega átti Hardy að leika hlutverk Elton John, en Egerton var að lokum ráðinn í hlutverkið.

Mynd
Taron Egerton í viðtalinu við Dax Shepard.

Framleiðandinn Matthew Vaughn opinberaði síðar ástæðuna fyrir leikaravalinu, en hann hafði áður leikstýrt Egerton í kvikmyndinni Kingsman.

„Mér finnst Tom Hardy vera einn besti leikarinn sem er uppi, en mér fannst hann vera of gamall fyrir hlutverkið,“ sagði Vaughn við Hollywood Reporter á sínum tíma, en Hardy var þá 41 árs. Auk þess gat hann illa sungið og ætlaði að mæma öll lögin. Hardy sagði að hann hefði hræðst tilhugsunina að syngja og að hann „gæti ekki haldið tón til að bjarga lífi sínu“.

Egerton var síðan ráðinn í hlutverkið, þó að Vaughn hafi sagt að Elton John og eiginmaður hans væru óákveðnir þar sem þeir voru hreinlega elskuðu Hardy. Það breyttist þó þegar þeir heyrðu Egerton syngja.