Fókus

Brad Pitt byrjaður aftur að drekka

Mynd
Brad Pitt

Stórleikarinn Brad Pitt viðurkennir að hann sé aftur byrjaður að drekka áfengi eftir að hafa verið edrú í sjö ár. Í nýju viðtali við Esquire tímaritið var hann spurður út í edrúmennskuna þegar hann bauð blaðamanninum vín á heimili sínu í Los Angeles.

„Ég var edrú í sjö ár. Og svo byrjaði ég aftur að drekka,“ sagði hann hlægjandi. „Ég drekk betur núna. Ég fékk nokkrum sinnum of mikið sjálfstraust og hugsaði: Já, nei, þetta er ekki gott fyrir mig. Ekki í miklu magni.“

Pitt hætti að drekka árið 2016 eftir meint atvik í flugvél sem varð til þess að endanlega slitnaði upp úr sambandi hans við leikkonuna Angelinu Jolie. Fram kom í dómsskjölum að Jolie hefði haldið því fram að Pitt hafi ráðist á sig og tvö barna þeirra, en þau áttu saman sex börn. Þá hafi hann einnig öskrað á börnin. Þau Pitt og Jolie gengu endanlega frá skilnaðinum í fyrra, minnst þrjú börnin hafa hætt að kenna sig við Pitt.

Mynd
Angelina Jolie og Brad Pitt hættu saman árið 2016. 

Hann segist stundum fá sér vín, þá nokkur glös. „Ég get ekki fengið mér mikið. Ég þarf að haga mér fagmannlega.“

Pitt opnaði sig um edrúlífið í viðtali við New York Times árið 2019, sagðist hann þá vera farinn að mæta á tólfsporafundi. „Hlutirnir voru gengnir of langt. Þannig að ég tók úr túradrykkjuna.“ Í hlaðvarpi við Dax Shephard í fyrra sagði Pitt að hann hefði verið kominn á hnéin og hefði þurft að vakna. 

Í nýjasta viðtalinu ræddi hann ekki mikið um skilnaðinn í viðtalinu en sagðist á einum tímapunkti að hann hefði fengið sjálfsvígslanganir á tímabili. „Sársaukinn var svo mikill að – ég ætlaði ekki að gera neitt en ég fann fyrir – ég fann fyrir köldu stálinu í byssukúlunni í hnakkanum, og ég fann fyrir létti.“

 

Í þessari frétt er fjallað um sjálfsvígslanganir. Ef ein­stak­ling­ar glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir er bent á Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa sam­band við Píeta-sam­tök­in sem veita ókeyp­is ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.