Vignir Vatnar stórmeistari í skák segist gríðarlega þakklátur fyrir lífið eftir að hafa farið svo djúpt að hann ætlaði að taka eigið líf. Vignir, sem er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar, er einn af öflugri ungu skákmönnum í heiminum og hefur vakið mikla athygli á undanförnum misserum. Hann segir skákina hafa komið inn á barnsaldri og síðan þá hafi verið augljóst hvert stefndi:
,,Ég byrjaði að tefla fimm ára eftir að pabbi kenndi mér. Hann er gamall skipstjóri og skákáhugamaður og kom þessu inn hjá mér. Það skein strax í gegn að ég hafði hæfileika og var frekar fljótt farinn að tefla fyrir Íslands hönd. Ég man þegar ég var á tímabili númer 5 í öllum heiminum á lista yfir skákmenn undir 14 ára aldri. Þegar maður hugsar um hvað heimurinn er stór og lönd eins og Rússland, Indland og fleiri lönd þar sem er mikið af krökkum sem gera ekkert nema þetta, þá er það býsna magnað. Það er aðeins öðruvísi að koma frá litla Íslandi, heldur en að koma frá löndum þar sem þú færð bara strax fjármagn og allan stuðning sem til er ef þú ert líklegur til að ná langt í einhverju,” segir Vignir og heldur áfram:
,,Magnið af gríðarlega öflugum ungum skákmönnum í heiminum í dag er orðið rosalegt, sérstaklega eftir að Magnus Carlsson varð stórstjarna og gerði skákina mun vinsælli. Ég tefldi við einn um daginn í Qatar sem er frá Tyrklandi og er númer 28 í heiminum þó að hann sé bara 14 ára gamall. Hann er líklega að fara að steypa Carlsson af stóli ef þróunin hans heldur áfram, þannig að það er mikið að gerast í þessarri íþrótt. Ég er bara 23 ára gamall, en mér líður stundum eins og gömlum kalli þegar ég er að keppa við þessa krakka sem eru jafnvel ekki búnir að fermast, en eru orðnir stórmeistarar og gríðarlega öflugir.”
,,Þegar ég horfi til baka sé ég að ég var mjög heppinn að hafa skákina og hætta ekki. Það kom tímabil þegar ég var unglingur sem ég ætlaði að hætta, af því að það þótti ekki töff að vera í skák og í raun bara asnalegt. Mér leið bara eins og ég væri þessi feiti gæi sem var í skrýtinni íþrótt og átti erfitt með að finna mig. En núna sé ég að ég veit ekki hvort ég væri hér ef ég hefði ekki haft skákina,” segir Vignir, sem hefur opnað sig um mikla andlega erfiðleika sem hann glímdi við á tímabili, þar sem hann beinlínis ætlaði að taka eigið líf:
,,Það er eiginlega galið fyrir mig að tala um þetta núna, af því að lífið mitt er svo gott og mér líður mjög vel. En mér finnst mikilvægt að opna á þetta án þess að vera með neina skömm, af því að það líður mörgum illa andlega og fólki á ekki að líða eins og það sé eitt í þessu. Ég var farinn að trúa því algjörlega að ég væri bara þunglyndur og það væri ekkert sem ég gæti gert til að breyta því. Ég var að brjóta mig stanslaust niður síðan ég var 11 ára krakki. Ég var fastur í þessum vítahring og langtímum saman var ég stanslaust að brjóta sjálfan mig niður. Alveg frá því að ég var barn var ég stöðugt með þetta niðurrifstal um að öllum væri sama um mig og enginn myndi nokkurn tíma elska mig. Svo endaði þetta með því að ég ætlaði að taka eigið líf um áramótin 2020/2021. Daginn eftir það vaknaði ég og ákvað að ég myndi fara alla leið í að elta tilgang. Í heilt ár setti ég átta tíma á dag í skákina og svo fór ég að fara í ræktina og hlutirnir byrjuðu að breytast hratt um leið og ég fór að finna sterkari tilgang og líða betur líkamlega.”
Vill opna umræðuna um andlega líðan ungra karlmanna
Vignir vill opna umræðuna um andlega líðan ungra karlmanna og segir það umræðuefni sem samfélagið þurfi að taka alvarlega:
,,Það er erfitt að vera ungur karlmaður í vestrænum heimi í dag og þess vegna finnst mér að mér beri ákveðin skylda til þess að tala um þetta og gefa ungum karlmönnum sem eru að glíma við erfiðleika von og sýna að það sé hægt að komast út úr þessu. Það eru margir strákar og ungir karlmenn fastir í einangrunarhegðun og fíkn og komnir með andlega líðan alveg niður í kjallara. Hvort sem það er tölvuleikjafíkn, klám eða annað, þá er mjög margt í nútímanum sem býr til hættur á fíkn og eingangrunarhegðun sem á endanum getur búið til hræðilega vanlíðan. En það er alltaf leið út og ég er besta dæmið um það. Ég held að mér beri skylda að hjálpa með því að segja mína sögu og vera alveg opinskár.”
Hark að lifa af skákinni
Vignir segir það hafa verið mikið hark að lifa einvörðungu af skákinni, en staðan sé orðin betri núna eftir að hann fór að ná meiri árangri og fá í kjölfarið meiri athygli:
,,Það er mikið hark að lifa af þessu og maður getur aldrei slegið slöku við. Það er svo mikill munur á verðlaunapeningnum ef maður vinnur eða ef maður er í öðru eða þriðja sæti. Ég var til dæmis á móti í London þar sem ég hefði fengið 1,8 milljónir ef ég hefði unnið og var með unnið tafl í úrslitum á móti spænskum stórmeistara, en missti skákina niður í jafntefli og það þýddi að ég fékk þrjúhundruð þúsund kall í staðinn. Þannig að það eru ekki alltaf jólin í þessu. Þess vegna er svo mikilvægt að búa til ákveðna ímynd og nota samfélagsmiðla, til þess að geta fengið samstarfsaðila og fundið aðrar leiðir til þess að fá innkomu en að treysta bara á verðlaunafé úr mótum. Ég finn stóran mun núna eftir að ég fór að fá meiri athygli. Ég er ekki lengur í þeirri stöðu að ef ég vinn ekki mót, þá geti ég ekki borgað leiguna mína. Þannig að ég er mjög þakklátur og ætla að halda áfram að elta drauminn alla leið.”
Hægt er að nálgast viðtalið við Vigni og öll viðtöl og podköst Sölva Tryggvasonar inni á solvitryggva.is
Í þessari frétt er fjallað um þunglyndi og sjálfsvíg. Ef einstaklingar glíma við sjálfsvígshugsanir er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa samband við Píeta-samtökin sem veita ókeypis ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.