Fókus

Býr í auglýsingaskilti fyrir ofan Sunset Strip í Hollywood: „Ég veifa til gaursins á hverjum degi“

Mynd

Kvikmyndin The Last House með Greta Lee og Wagner Moura í aðalhlutverkum kemur út á Netflix í dag.  Myndin vekur upp spurninguna: „Hversu lengi gætirðu lifað af ef þú værir fastur inni í þínu eigin húsi?“ Í myndinni leika Lee og Moura hjón sem ásamt tveimur börnum sínum lokast inni á heimili þeirra. 

Til að auglýsa myndina réði Netflix listamann til að búa í auglýsingaskilti um 9 metrum fyrir ofan fjölfarin gatnamót Sunset Boulevard og Selma Avenue í Hollywood. Í skiltinu hefur verið útbúin fullbúin stofa sem líkist stofu fjölskyldunnar í kvikmyndinni. Ökumenn og gangandi vegfarendur komast ekki undan því að sjá þetta skrýtna „heimili“ með skilaboðunum: „Hversu lengi geturðu lifað af?“

Mynd

Maðurinn mun þó ekki þurfa að sinna starfinu lengi, en hann mun búa í skiltinu frá fimmtudeginum 6. ágúst til laugardagsins 8. ágúst, en eins og áður sagði kemur myndin út í dag.

„Þó hann reyni að halda áfram eins eðlilega og mögulegt er inni í lokuðu rýminu, mun hann eiga samskipti við farþega og vegfarendur fyrir neðan með því að nota hvíta tússtöflu, sem endurómar óhug myndarinnar,“ segir í tilkynningu Netflix.

Netverjar hafa þegar birt myndir og myndbönd af  „heimilinu“. Þar má sjá manninn veifa til fólks og halda uppi tússtöflunni með skilaboðum eins og „Hvað er í gangi?“ og „Fastur hérna inni“.

Mynd

Margir netverja telja þetta vera frábæra leið til að kynna myndina.

„Ég veifa til gaursins á hverjum degi þegar ég geng í ræktina. Það er ótrúlegt að sjá hús í loftinu,“ skrifaði einn. „Snjallt bragð. Það er snilldarlegt að láta markaðssetninguna endurspegla raunverulega forsendu myndarinnar,“ bætti annar við. Nokkrir veltu eðlilega fyrir sér hvernig salernismálum væri háttað.