Matargyðjan Martha Stewart kallaði fyrrverandi eiginmann sinn, Andy Stewart, fífl þegar hún ræddi um skilnað þeirra árið 1990.
Þegar Stewart var spurð í viðtali við People hvort hún hefði heyrt frá Andy eftir að hafa rætt skilnað þeirra í heimildarmynd sinni á Netflix árið 2024, sagði hún: „Aðeins til að minna mig á skilnaðarsamninga, sem ég las aldrei,“ bætti hún við. „Ég meina, hverjum var ekki sama eftir tveggja ára rifrildi um samning? Ég hef enn ekki lesið samninginn. Andy er fífl.“
Martha og Andy giftu sig árið 1961 og eignuðust dótturina Alexis, árið 1965. Hjónin skildu eftir næstum 30 ára hjónaband árið 1987, sem Andy á að hafa ýtt undir, að því er Martha greindi frá í heimildarmynd sinni.
„Hann var sá sem vildi skilnaðinn, ekki ég,“ sagði hún. „Hann var að henda mér frá serér. Ég var fertug. Hann kom mjög illa fram við mig, og í staðinn held ég að ég hafi komið illa fram við hann,“ fullyrti Stewart.
Um framhjáhald af beggja hálfu var að ræða og Stewart hélt því fram að fyrrverandi eiginmaður hennar „væri að hlaupa á brott með fólki“. „Ég sagði alltaf að ég væri svanur og svanir eru einkvænir. Og ég hélt að einkvæni væri aðdáunarvert. En það kom í ljós að það bjargaði ekki hjónabandinu.“
Stewart viðurkenndi hins vegar að hafa einnig haldið fram hjá Andy og útskýrði hvernig hún kyssti ókunnugan mann í brúðkaupsferðinni í Flórens á Ítalíu.
Stewart sagðist hafa heimsótt dómkirkju einsömul og kallaði það „mjög rómantískan stað troðfullan af ferðamönnum.“
„Ég hitti þennan mjög myndarlega gaur,“ sagði hún í heimildarmyndinni. „Hann vissi ekki að ég væri gift. Þetta var ólíkt öllu sem ég hafði nokkurn tímann upplifað.“
Stewart sagði einnig opinskátt frá því hvernig hún hafði átt „mjög stutt ástarsamband við mjög aðlaðandi írskan mann“ á meðan hún starfaði sem verðbréfamiðlari í New York snemma í hjónabandi sínu.
„Ég held ekki að Andy hafi nokkurn tímann vitað af því,“ sagði Stewart. „Þetta var ekkert mál. Ég hefði aldrei slitið hjónabandinu vegna ástarsambandsins.“
Eftir að heimildarmyndin kom út gagnrýndu Andy og þriðja eiginkona hans, Shyla Nelson Stewart, Stewart fyrir að ræða hjónabandið opinberlega meðan hann hafði „haldið áfram í kyrrþey með líf sitt“. Andy og Shyla giftu sig árið 2016 eftir annað hjónaband hans við Robyn Fairclough, sem hann giftist árið 1993.