Fókus

Matargyðjan fellir harðan dóm yfir Markle

Mynd

Matargyðjan Martha Stewart er opinská um að Meghan Markle hafi stigið inn í „eldhúsið“ eftir að hafa verið leikkona og tilvonandi prinsessa.

„Ég borðaði kvöldmat með Meghan Markle um daginn. Við vorum báðar gestir í kvöldverðarboði í Kaliforníu. Og hún var nýkomin úr höllinni,“ sagði Stewart við People, og vísaði þar til nýlegrar ferðar Markle til Bretlands með eiginmanni sínum, prins Harry, og tveimur börnum þeirra.

„Ég talaði ekki meira en nokkur orð við hana, en ég veit að hún var að tala um starf sitt,“ bætti Stewart við.

Stewart var spurð hvort hún hefði eitthvað að segja um að Markle „stígi inn í hennar heim“ með eigin matreiðsluþætti, With Love, Meghan.

„Ef þú ert leikkona er erfitt að breytast svo í prinsessu og svo úr prinsessu í heimilishaldsgúrú í sjónvarpsþætti,“ sagði Stewart. „Þetta helst ekki í hendur,“ bætti hún við.

Eins og margoft hefur komið fram yfirgáfu hjónin konungsfjölskylduna árið 2020 og fluttu til Bandaríkjanna. Hafa þau síðan reynt að skapa sér eigin starfsferil og verkefni, oftast með brösugum árangri. Í apríl síðastliðnum setti Markle á markað lífsstíls-, matreiðslu- og kynningarmerkið As Ever, aðeins vikum eftir að lífsstílsþættir hennar, With Love, Meghan, voru frumsýndir á Netflix.

Stewart var ein af nokkrum sem virtist hafa eitthvað að segja um það verkefni. Í júlí 2025 sagði Stewart að hún vonaði að Markle „viti hvað hún er að tala um“.

„Áreiðanleiki er allt fyrir mér og það er afar mikilvægt að vera einlægur og fróður um viðfangsefnið sitt,“ sagði Stewart á þeim tíma. Stewart sagðist ekki hafa „á móti“ hugmyndinni um að aðrir fylgdu í hennar kjölfar og óskaði þeim öllum „góðu gengi“.