Fókus

Fá langtíma nálgunarbann á eltihrelli „heltekinn“ af einni þeirra

Mynd

Dómari hefur veitt fjölskyldu Kardashian-Jenner langtíma nálgunarbann gegn manni sem sakaður er um að hafa heimsótt heimili Kylie Jenner ítrekað.

Árið 2021 var maður að nafni Kyle Robert DeWick handtekinn fyrir að hafa farið inn á heimili Kylie Jenner. DeWick hafði áður verið gefið að sök að hafa farið í fjölda óvelkominna heimsókna til Kylie sem er sú yngsta af systkinunum í Kardashian -Jenner fjölskyldunni.

Greint er frá því að hann hafi reynt að nýju að „gerast náinn“ fjölskyldunni undanfarna mánuði.

Í maí var fjölskyldunni veitt tímabundið nálgunarbann gegn DeWick, sem nú hefur verið framlengt.

Í dómsskjölum sem The Daily Mail og TMZ greina frá kemur fram að samskipti DeWick við fjölskylduna nái aftur til ársins 2021 þegar móðirin Kris Jenner heldur því fram að öryggisverðir Kylie hafi séð hann nálægt eign Kylie og beðið hann um að fara. DeWick neitaði því og var því handtekinn fyrir ólögmæta innrás á landareign (e. trespassing).

Mynd
Mæðgurnar Kylie og Kris Jenner.

Í dómsskjölunum kemur einnig fram kenning Kris um hvers vegna DeWick var að mæta óboðinn. Í skjölunum er vitnað í Kris þar sem hún segist hafa verið upplýst um að DeWick teldi að hún hefði „hvatt“ hann til að biðja um hönd yngstu dóttur og jafnvel „sent honum skilaboð“ þar sem hún minntist á ást DeWick til Kylie.

Svar Kris var: „Ég myndi alls ekki segja ókunnugum að fara heim til dóttur minnar.“

Árið 2024 er greint frá því að DeWick hafi lagt fram kæru til alríkisstjórnarinnar gegn Kardashian-Jenner fjölskyldunni. Hann sakaði systurnar Kylie, Kendall og Kim, auk Kris móður þeirra, um að hafa komið í veg fyrir „samband“ hans við Kylie og hélt því einnig fram að þær hefðu verið að fylgjast með honum.

Þegar Kris sótti um nálgunarbann gegn DeWick kallaði hún fullyrðingar hans „áhyggjuefni“ og neitaði ásökununum. Hún bætti við að beiðni hans hefði valdið henni „alvarlegri tilfinningalegri vanlíðan og kvíða“, miðað við þá „reiði“ sem birtist í fullyrðingum hans.

DeWick er sakaður um að hafa haft samband við fasteignasala undanfarna mánuði varðandi heimili nálægt Kardashian-Jenner fjölskyldunni til að „komast nálægt“ þeim, auk þess að reyna að ná til nágranna þeirra, fullyrðingar sem studdar eru af John Romero, rannsóknarstjóra hjá einkaöryggisfyrirtæki, sem Kris réði sér til verndar.

Eitt af húsunum er talið hafa eitt sinn tilheyrt fyrrverandi eiginmanni Kim Kardashian, Kanye West.

Mynd

Og rannsóknir Romero hættu ekki þar. Romero hélt því fram að DeWick hefði haft samband við fasteignasala varðandi eign sem Kylie væri að selja og að Romero hefði einnig talað við DeWick í síma og fullyrt að DeWick hefði sagt honum að ein af Kardashian-Jenner systrunum væri „ástfangin af honum og hefði verið að elta hann“. Romero dró þá ályktun að það væri Kylie.

Í beiðninni um nálgunarbann er Kris sögð flokka DeWick sem eltihrellir, og bætir hún við: „Ég hef engin tengsl við hann.“

Dómari hefur síðan veitt DeWick langtíma nálgunarbann sem gildir til 31. júlí 2029. Þetta þýðir að DeWick má ekki hafa samband við, finna heimilisfang eða vera innan 100 metra radíus frá Kris, og börnum hennar Kylie, Kendall, Kim, Kourtney, Khloe eða Robert.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem fjölskyldan hefur fengið nálgunarbann. Árið 2024 sótti Kim um nálgunarbann gegn Melvin Jeffery Conley. Hann var sakaður um að hafa brotist inn á heimili leikkonunnar Emmu Roberts, hringt í hana úr heimasíma hennar og sagt að hann vildi ná sambandi við Kim. Hann er síðar sakaður um að hafa heimsótt heimili Kris Jenner og reynt að þykjast vera umboðsmaður Kim áður en hann kom að eign Kim í Malibu. Emma Roberts fékk fimm ára nálgunarbann gegn Conley. Kim fékk tímabundið nálgunarbann en gat ekki fengið varanlegt þar sem lögfræðiteymi hennar hafði ekki upp á Conley til að afhenda honum nauðsynleg skjöl.