66°Norður opnaði í dag nýja verslun á Store Regnegade þar sem verslunin Storm var áður til húsa. Storm þekkja margir Íslendingar en hún hefur skapað sér sess sem ein helsta tísku- og lífstílsverslun Kaupmannahafnar síðustu áratugi. Verslunin er alls 160 fm að stærð og er á tveimur hæðum.
„Þegar Rasmus Storm, eigandi Storm, ákvað að láta staðar numið með verslunina eftir 32 ár í rekstri vildi hann finna réttan aðila sem gæti haldið uppi merkjum þessa skemmtilega verslunarhúsnæðis. Samtal hófst á milli okkar og úr varð að 66°Norður tók við húsnæðinu en það varð líka til gott vinasamband á milli okkar og unnin var lítil samstarfslína sem seld verður í versluninni sem Rasmus hannaði á Íslandi með hönnunarteyminu okkar,“ segir Helgi Rúnar Óskarsson, forstjóri 66°Norður.
Verslunin sækir innblástur til Íslands en þar má t.d. finna vegg úr hraunhellum, íslenskt berg sem og mátunarklefarnir á neðri hæðinni eru bein skírskotun í jökla og jöklahella. Verslunarrýmið er málað með málningu frá íslenska fyrirtækinu Dýpi sem vinnur málningu úr kalkþörungum úr Arnarfirði á Vestfjörðum. Versluninni hefur verið fagnað með ýmsum hætti í dag en dagurinn byrjaði á hlaupi frá versluninni í samstarfi við hlaupamerkið Hoka. Fjölmiðlum var svo boðið í opið hús og morgunmat og loks er götupartý fram á kvöld þar sem danskir og íslenskir aðilar koma fram.
Nýja verslunin í Store Regnegade er þriðja verslun 66°Norður í Kaupmannahöfn en íslenska útivistarmerkið er fyrir með verslanir í Fredriksberg og á Kastup-flugvelli.