Nýr veitingastaður á Tenerife hefur vakið mikla athygli eftir að hafa sett upp skilti við innganginn þar sem áhrifavöldum er meinaður aðgangur. Um er að ræða veitingastaðinn Guachinche Casa Aguere, sem staðsettur er í La Laguna og sérhæfir sig í hefðbundinni kanarískri matargerð.
Canarian Weekly greinir frá.
Eigendur staðarins segja ákvörðunina beinast að þeim sem reyna að fá ókeypis mat, ferðalög eða vörur í skiptum fyrir færslur á samfélagsmiðlum án þess að skila fyrirtækjum raunverulegum ávinningi. Þeir leggja áherslu á að þeir séu ekki að gagnrýna þá sem eru með faglega umfjöllun heldur þá sem telja fjölda fylgjenda nægja til að réttlæta fríðindi.
Í yfirlýsingu segja eigendurnir að það sé auðvelt að kaupa myndavél og kalla sig efnisskapara, en mun erfiðara að byggja upp traustan hóp fylgjenda sem treysti raunverulega ráðleggingum viðkomandi. Samstarf við áhrifavalda eigi aðeins rétt á sér þegar það skili mælanlegum árangri fyrir fyrirtækið.
Færsla veitingastaðarins vakti þegar í stað miklar umræður á samfélagsmiðlum. Margir fögnuðu ákvörðuninni og sögðu of algengt að veitingastaðir sættu þrýstingi um að veita ókeypis máltíðir gegn kynningu sem skilaði litlu eða engu. Aðrir sögðu eigendurna hins vegar sýna hræsni þar sem þeir hefðu sjálfir boðið áhrifavöldum á opnun staðarins til að kynna reksturinn og laða að viðskiptavini.
Málið endurspeglar vaxandi umræðu innan veitingageirans, bæði á Kanaríeyjum og víðar, um hvort samstarf við áhrifavalda sé alltaf þess virði. Sum fyrirtæki telja slíkt samstarf skila aukinni sölu og sýnileika en önnur telja sífellt fleiri biðja um ókeypis þjónustu án þess að bjóða sambærilegan ávinning í staðinn. Skiltið hefur því, hvort sem það var markaðsbrella eða ekki, vakið mikla athygli.