Fókus

Ein best heppnaða þjóðhátíðin

Mynd
Ágúst Brynjarsson. Myndir við frétt: Jonfromiceland

Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum lauk snemma í morgun og segir þjóðhátíðarnefnd þetta vera á meðal best heppnuðu þjóðhátíða á síðari árum. Í tilkynningu frá nefndinni greinir meðal annars frá því að hátíðin hafi farið afskaplega vel fram, áhyggjur af miðasölu hafi reynst óþarfar og að Ágúst Brynjarsson hafi slegið í gegn í frumraun sinni við stýringu á brekkusöngnum. 

Tilkynningin er eftirfarandi: 

„Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum lauk núna undir morgun og samkvæmt upplýsingum frá stjórnendum gæslumála bendir allt til þess að hátíðin hafi verið meðal þeirra best heppnuðu á síðari árum. Að þeirra sögn fór hátíðin afar vel fram og einkenndist af því að gestir sýndu hver öðrum virðingu, tillitssemi og mikla vinsemd.

Um miðjan júlí höfðu fjölmiðlar velt fyrir sér hvort miðasala á Þjóðhátíð gengi hægar en undanfarin ár. Sú mynd breyttist hins vegar hratt þegar nær dró verslunarmannahelgi og hagstæðar veðurspár fóru að birtast. Þúsundir gesta bættust við á laugardag og sunnudag, flestir með Herjólfi en einnig með flugi til Vestmannaeyja. Þegar litið var yfir Herjólfsdal á kvöldvökunni í gær var ljóst að hátíðin var afar vel sótt.

Mynd

Lokakvöldið fór fram í blíðskaparveðri. Hljómsveitin Gosarnir, skipuð Vestmannaeyingum, sá um tónlistina á kvöldvökunni ásamt Pálma Gunnarssyni, Klöru Elías, Jóni Jónssyni, Birgittu Haukdal og Matta Matt. Þegar leið á kvöldið bættist Friðrik Dór einnig í hópinn.

Brekkusöngurinn var í ár í fyrsta sinn undir stjórn Ágústs Brynjarssonar sem tók við hlutverki brekkusöngsstjóra fyrr á árinu. Frumraun hans í hlutverkinu fékk góðar viðtökur og tóku gestir í Herjólfsdal vel undir sönginn. Að brekkusöng loknum voru hin hefðbundnu blys tendruð í hlíðum dalsins, eitt fyrir hverja Þjóðhátíð sem haldin hefur verið í Vestmannaeyjum.

Að því loknu tók Stuðlabandið við á Stóra sviðinu og dansleikurinn hélt áfram fram undir morgun þegar Þjóðhátíð 2026 lauk formlega.

Mynd

Samkvæmt fyrstu upplýsingum gekk framkvæmd hátíðarinnar og öryggisgæsla vel fyrir sig og urðu engin teljandi vandræði á hátíðarsvæðinu. Góð veðrátta, fjölmenn hátíð og rólegt yfirbragð einkenndu Þjóðhátíð 2026.“