Fókus

Ætlar að draga sig í hlé

Mynd
Ariana Grande við frumsýningu Wicked: For Good! í New York í nóvember. Mynd/Getty Images

Söngkonan heimsfræga Ariana Grande hefur í hyggju að draga sig út úr sviðsljósinu í óákveðinn tíma. Meðal annars er hún hætt við að taka þátt í uppfærslu á söngleik í London eins og til stóð.

BBC greinir frá því að þegar yfirstandandi tónleikaferð söngkonunnar ljúki í næsta mánuði muni hún draga sig í hlé.

Grande mun þó ekki gerast einsetukona en hún mun ekki koma fram opinberlega en hversu lengi það mun standa liggur ekki fyrir. Grande átti að vera í leikhópnum við uppsetningu á söngleiknum Sunday in the Park with George, eftir bandaríska tónskáldið Stephen Sondheim, í London á næsta ári. Aðstandendur sýningarinnar hafa hins vegar orðið við beiðni hennar um að draga sig út úr verkefninu og segjast sýna Grande fullan skilning og óska henni alls hins besta.

Fjölmiðlafulltrúi söngkonunnar segir álagið og athyglina í hennar garð á opinberum vettvangi hafa verið mikla. Hún muni því taka sér það hlé sem hún hafi svo sannarlega unnið fyrir en hversu langt það verður er óljóst.

Lýst hefur verið yfir áhyggjum af heilsu Grande og sjáanlegum breytingum á útliti hennar undanfarin misseri. Nýjasta plata hennar Petal kom út 31. júlí síðastliðinn og þar singur hún meðal annars um gagnrýni og að fólk segi að hún sé ekki nógu góð.

Fjölmiðlafulltrúinn segir að söngkonan leggi sig fram við að halda kraftmikla tónleika fyrir aðdáendur sína og það reyni vissulega á hana líkamlega en hún geri það allt saman á heilbrigðan hátt. 

Aðdáendur Grande hafa lýst yfir stuðningi sínum við þessa ákvörðun hennar á samfélagsmiðlum og tjáð henni aðdáun sína og væntumþykju. Um leið lýstu sumir þeirra yfir áhyggjum af henni.