Fókus

Þjóðhátíð fær fljúgandi start: „Það vilja allir vera Vestmanneyingar um verslunarmannahelgi“

Mynd
Mynd: Jónfromiceland

Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum hefur farið geysilega vel af stað að sögn Þjóðhátíðarnefndar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu. Þess má geta að auk þeirra hljómsveita sem nefndar eru tilkynningunni vakti hljómsveitin Mucky Muck verðskuldaða athygli í brekkunni. En tilkynningin er eftirfarandi: 

„Tónleikarnir á stóra sviðinu á Þjóðhátíð í gærkvöldi tókust vel. Dagskráin náði hámarki þegar Birgitta Haukdal og Herra Hnetusmjör buðu upp á kraftmikla innkomu af sínum vinsælustu lögum sem endaði svo á því að þau frumfluttu nýja Þjóðhátíðarlagið í ár, Flugeldar.

Þá var brennan á sínum stað og í framhaldi komu hljómsveitirnar Retro Stefson og XXX Rottweiler hver á fætur annarri með frábær sett. Þvert á spár um dræma aðsókn á Þjóðhátíð í ár var Dalurinn vel fullur af lífsglöðum gestum en stemmningin afslappaðri en oft áður enda veðrið og lífið leikið við gestina.

Mynd

Myndir: Jónfromiceland

„Þetta er vonum framar, Dalurinn er fullur af fólki sem er að skemmta sér fallega. Það er að sprengja í pöntunum í Herjólf og miðarnir hafa rokið út í dag og ég held við séum að horfa fram á einhvers konar metsunnudag.” Sagði Jónas Guðbjörn Jónsson formaður Þjóðhátíðarnefndar undir lok kvölds gær. „Ég held að miðakaupendur hafi verið óákveðnir lengur en síðustu ár. Það kann að tengjast veðurspám, það kann að tengjast að hátíðin byrjar nánast fyrir mánaðarmót en hvað sem það er, þá vilja allir vera Vestmanneyingar um verslunarmannahelgi á Íslandi.”

Þau Birgitta, Herra Hnetusmjör, Retro Stefson og XXX Rottweiler hundar voru þó langt frá því að vera einu listamenn kvöldsins sem vöktu athygli. Á sviðið stigu einnig Daniil, Hipsumhaps, Gísli Pálmi, Sprite Zero Klan, Tónhylur og Séra Bjössi ásamt Háska og Reu, sem öll áttu frábærar innkomur.

Mynd



Dagskráin á stóra sviðinu í kvöld er sannarlega glæsileg. Gestir Þjóðhátíðar fá að sjá nokkra af vinsælustu tónlistamönnum landsins stíga á svið þegar Elísabet Ormslev, Klara Einars, Aron Can, Friðrik Dór, Herra Hnetusmjör, Kristmundur Axel og Doctor Victor ganga svið. Kvöldinu lýkur síðan með tónleikum Bandmanna. Þá má ekki gleyma flugeldasýningunni.

Veðrið í Vestmannaeyjum hefur verið gott en þó er nokkur vindur en sunnanáttin fer þó að mestu leyti fram hjá gestum Herjólfsdals þar sem hún á ekki greiða leið dalinn. Annars er bara sól og 16 til 18 stiga hiti í dag, laugardag og sunnudag.“