Kanadíska tónlistarkonan Shania Twain segist hafa alist upp á „mjög ofbeldisfullu“ heimili þar sem foreldrar hennar beittu hana og systur hennar líkamlegu ofbeldi, en hún deildi átakanlegum smáatriðum úr bernsku sinni í viðtali á fimmtudag.
Twain (60) sagði að hún og systur hennar, Jill og Carrie Ann, hefðu reglulega orðið vitni að slagsmálum milli móður sinnar, Sharon, og stjúppabba, Jerry Twain, á uppvaxtarárunum í Ontario í Kanada, og að þær hefðu einnig verið beittar ofbeldi.
„Þau elskuðu hvort annað. Þau gengu í gegnum svo margar upp- og niðursveiflur saman, en þau rifust mikið og urðu oft ofbeldisfull,“ sagði Twain í þættinum Wild Card with Rachel Martin.
Þegar Martin spurði hvort ofbeldið hefði einnig náð til Twain og systra hennar svaraði Twain því játandi.
„Ef ég var á röngum stað á röngum tíma, þá klárlega,“ hélt hún áfram. „Báðir foreldrar mínir voru frekar hörð líkamlega. Við fengum oft barsmíðar og stundum sparkað í okkur, bókstaflega sparkað í okkur.“
Twain sagði að foreldrar hennar hefðu „sært hvort annað mest“. „Þetta var mjög ofbeldisfullt. Mamma missti oft hár. Hún var oft með marbletti ft í andlitinu og ... það var stundum frekar slæmt. Ég meina, húsið okkar skalf. Veggirnir titruðu,“ sagði hún. „Þetta er mjög átakanlegt. Það verður hávært og ógnvekjandi, eins og mjög slæmt þrumuveður.“
Twain sagði að móðir hennar hefði ítrekað reynt að yfirgefa eiginmann sinn en fjölskyldunni hefði aldrei tekist að losna.
„Mamma reyndi oft að fara. Hún fór, við fórum, en hann fann okkur alltaf, eða hún gafst alltaf upp og fór til baka,“ sagði Twain. „Þetta var eins konar hringrás.“
Sharon skildi við líffræðilegan föður Twain, Clarence Edwards, þegar Twain var tveggja ára. Hún giftist síðar Jerry Twain, sem ættleiddi Twain og systur hennar. Twain var aðeins 22 ára gömul þegar Sharon og Jerry létust í bílslysi nálægt Wawa í Ontario 1. nóvember 1987, á sama tíma og tónlistarferill hennar var að hefjast.
Twain hefur áður talað um bernsku sína, ítarlegast í endurminningum sínum frá árinu 2011, From This Moment On. Í bókinni fullyrðir Twain að Jerry hafi beitt hana líkamlegu og tilfinningalegu ofbeldi í mörg ár og að hún hafi horft á hann berja móður sína ítrekað. Hún minntist eins atviks þar sem hún sló hann með stól þegar hann réðst á Twain áður en hann sló hana í kjálkann.
Twain hélt því einnig fram að Jerry hefði beitt hana kynferðislegu ofbeldi frá því hún var 10 ára gömul og sagði við Guardian árið 2018: „Mér finnst kynferðisofbeldið haldast í hendur við líkamlegt og andlegt ofbeldi þegar það er einhver sem þú þekkir. Ég lærði að loka á það.“