Eins og og greitt var frá í morgun er einn afkastamesti og dáðasti tónlistarmaður Íslandssögunnar, Gunnar Þórðarson, látinn. Hið mikla framlag hans til íslenskrar tónlistar er ómetanlegt og það kemur vel fram í minningarorðum fjölda Íslendinga sem birst hafa á samfélagsmiðlum nú í kjölfar andlátsfregnarinnar. Þau sem þekktu hann persónulega minnast ekki síður Gunnars sem persónu.
Meðal þeirra sem hafa tjáð sig um fráfall Gunnars er Egill Eðvarðsson myndlistarmaður, kvikmyndagerðarmaður og upptökustjóri á RÚV til fjölda ára. Hann skrifar um Gunnar:
„Í gær kvaddi þessa veraldlegu tilvist okkar einn minn tryggasti vinur til 55 ára, Gunnar Þórðarson, hljómlistarmaður og tónskáld. Og Gunni var einn þeirra sem svo sannarlega gerði gagn. Einhver fjölhæfasti tónlistarmaður, sem þjóðin hefur nokkru sinni eignast, atorkusamur verkmaður í höll tónlistargyðjunnar, sem skilur eftir sig ógrynni af glitrandi tónlistarperlum, tónlistargulli og gersemum, sem munu lifa með þjóðinni um ókominn tíma… gagnast okkur öllum og gleðja svo um munar. Takk, elsku vinur, fyrir allt og allt. Tónlistina, samstarfið, vináttuna og væntumþykjuna. Þú varst mér sönn fyrirmynd.“
Gott að spjalla
Arnar Eggert Thoroddsen blaðamaður, lektor og einn helsti sérfræðingur þjóðarinnar í dægurtónlist rifjar upp kynni sín af Gunnari:
„Feiminn maður en ávallt kurteis og áran með honum góð. Ég tók fjölda viðtala við hann, vegna Hljóma, Ríó, sólóefnis o.s.frv. og með tíð og tíma þróaðist traust. Okkur fannst gott að spjalla. Vorum rólegir. Tók m.a. ævintýralegt viðtal við hann á heimili hans þar sem hann og Raggi Bjarna voru að plögga jólaplötu. Hef aldrei á ævinni hitt ólíkari menn. Það óð á Ragga en Gunnar stóískur, vinalegur og hélt hlutunum á jörðinni. Samúðarkveðjur til vina og fjölskyldu. Og ég nefni auðvitað snilldargáfu hans á lagasmíðasviðinu en þar átti hann fáa sína líka. Fyrstu tvö útgefnu lög Hljóma 1965, "Fyrsti kossinn" og "Bláu augun þín" sanna það allt saman. Fyrra lagið sígrænn rokkari, hið síðara sígræn ballaða. Ótrúleg lög bæði tvö.“
Hetja
Jón Ólafsson tónlistarmaður og upptökustjóri lýsir Gunnari sem fyrirmynd:
„Hetja æsku minnar og hugsanlega besti lagasmiður sem Ísland hefur alið er fallinn frá. Ég þakka fyrir viðkynnin og votta vinum og fjölskyldu samúð mín. Þeir hverfa nú hver á fætur öðrum, jöfrar íslenskrar tónlistar. Þetta ár maður. 2026.“
Margir geta eflaust tekið undir með Jódísi Skúladóttur fyrrverandi alþingismanni sem lýsir þeim áhrifum sem tónlist Gunnars hafði á hana:
„Gunnar Þórðarson var einn af okkar bestu lagahöfundum og við sem erum börn hippa kynslóðarinnar drukkum tónlistina hans Gunna í okkur með móðurmjólkinni. Sumarið eftir fermingu fór ég í sjö vikna ferð um Norðurlöndin með móðursystur minni og fjölskyldu hennar og í minningunni hlustuðum við nánast alla ferðina á kasettu með Hljómum. Það er eitthvað svo mannlegt, rómantískt og tregafullt við þessa músík sem hittir beint í hjartastað.“
Meistari
Páll Óskar Hjálmtýsson tónlistarmaður fer ekki í grafgötur með sitt mat á áhrifum Gunnars á íslenska tónlist:
„Takk, meistari. Takk fyrir allar gjafirnar sem streymdu frá þér til okkar hinna. Svo varstu líka svo cool. Hljómar voru besta bítlahljómsveitin. Trúbrot var besta hippahljómsveitin. Þú & ég var besta íslenska diskóið. Ragnheiður er besta íslenska óperan. Það var ekkert sem þú gast ekki tileinkað þér og alltaf var Gunna Þórðar sándið yfir þessu öllu.“
„Hljómagangurinn alltaf spennandi, óvæntur, og svo kom einhver galdur í viðlögunum sem létu lögin dúndrast inn í þjóðarsálina. Poppið þitt var flókið, en hljómaði svo auðvelt. Bestu listaverkin eru alltaf þannig. Þessu ná ekki allir, en sá sem getur samið Þitt fyrsta bros, Bláu augun þín, Ástarsælu, Lífsgleði, Himin og jörð, Gaggó vest, Er hann birtist, Við Reykjavíkurtjörn og Vetrarsól er ekkert minna en meistari á næsta level. Hér er síðasta ljósmyndin sem var tekin af okkur, baksviðs á 80 ára afmælistónleikunum þínum í Hörpu. Ég var svo glaður að fá að vera með. Og ég er svo glaður yfir því að þú hafir verið til. Hvíl í friði, Gunnar Þórðar snillingur.“
Sigríður Thorlacius tónlistarkona er á sams konar nótum:
„Það er stórt en verðugt, gefandi og gott verkefni að kynna öll ótrúlegu lögin hans Gunna fyrir litla besta 4 ára manninum mínum. Og að útskýra fyrir honum að öll þessi lög sem við erum alltaf að hlusta á í bílnum, öll þessi lög sem við höfum hlustað á síðan hann var ómàlga, öll uppáhalds lögin og hin lögin sem hann er um það bil að fara að kynnast séu öll eftir þennan eina sama ótrúlega mann. Góða ferð í ljósið kæri Gunnar og takk fyrir allar þínar miklu stóru óendanlegu gjafir.“
Þjóðin
En það eru ekki eingöngu þekktir vinir og kollegar Gunnars sem minnast hans og hins ómetanlega framlags til íslenskrar tónlistar. Fjöldi athugasemda hafa verið ritaðar þar sem Gunnari er þakkað fyrir alla tónlistina sem hann færði þjóð sinni:
„Bláu augun þín eitt fallegasta lag samið á íslensku. Samúðarkveðjur til fjölskyldunnar og allrar þjóðarinnar.“
„Stórkostlegur listamaður.“
„Blessuð sé minning um góðan dreng sem mótaði nokkrar kynslóðir með sínu framlagi til tónlistar.“
„Blessuð sé minning þessa frábæra tónlistarmanns.“
Hér hefur aðeins verið stiklað á stóru um þann mikla fjölda minningarorða um Gunnar Þórðarson sem birst hafa. Umfangið er slíkt að ljóst er að tónlist hans hefur snert fjölda Íslendinga djúpt í þá hálfu öld sem tónlistarferill Gunnars varði.