Stefán Einar Stefánsson, hinn landskunni ritstjóri Spursmála á mbl.is, hefur glímt við erfið bakmeiðsli allt frá árinu 2015. Meiðslin ollu því að hann gat ekki hlaupið í rúman áratug en langhlaup voru áður líf hans og yndi.
En eftir kynni af þjálfaranum Birni Þór Sigurbjörnssyni hefur það undur gerst að Stefán getur hlaupið aftur. Hann fer yfir þetta í Facebook-færslu:
„Eftir alvarleg bakmeiðsli árið 2015 gat ég ekkert hlaupið í rúman áratug. Það var ömurlegt því ég elskaði langhlaup og átti þokkalegasta tíma í maraþoni, 3:38:00 - tíma sem ég ætlaði að bæta.
Um áramótin kynntist ég Birni Þór Sigurbjörnssyni sem sagði strax að ég gæti hlaupið. Það þyrfti að sönnu að hafa nokkuð fyrir því, en að það væri hægt.
Ég get núna án vandkvæða hlaupið 10 km, tvisvar til þrisvar í viku. Mér finnst það sannast sagna stappa nærri kraftaverki. Og þvílíkt frelsi.
Ég skil ekki alltaf hvert Björn er að fara með æfingunum sem hann lætur mig gera, en þær skila árangri. Það er það sem skiptir máli.“