Fókus

Ben Affleck vann eina milljón dollara - Hefðir þú svarað rétt?

Mynd

Leikarinn og leikstjórinn Ben Affleck fór ekki tómhentur frá þáttaröðinni Who Wants to Be a Millionaire þar sem hann mætti til leiks með Jeopardy! Meistaranum Jamie Ding. Félagarnir  unnu 1 milljón dollara verðlaun fyrir síðustu spurninguna.

Þátturinn var sýndur í gær, miðvikudagskvöld, og rennur vinningsféð til stofnunar Afflecks, Eastern Congo Initiative. 

Þátturinn hófst með því að félagarnir þurftui aðeins að svara tveimur spurningum.

Mynd

Spurningin um 500.000 dollara hljóðaði svona: „Hvaða afrek náðist aðeins tveimur mánuðum eftir að grein í New York Times sagði að það myndi ekki gerast í 1 til 10 milljónir ára?“

Svarmöguleikar voru: fyrsta flugferðin, klofning atómsins, klónun spendýrs og bóluefnið gegn lömunarveiki. 

Ding hélt fyrst að svarið væri fyrsta flugferðin og Affleck samþykkti það. 

„Ég man þetta bara vegna þess að þetta var tími í lífi mínu þar sem ég eyddi tíma í að leita að dæmum þar sem fjölmiðlar höfðu rangt fyrir sér. Já, bara af handahófi,“ útskýrði Affleck. „Og ég man svona, óljóst, í undirmeðvitund minni eftir Times og Wright-bræðurnum og allt þetta var 1905, 3 eða 4, eða eitthvað,“ bætti Affleck við.

Kynnirinn Jimmy Kimmel sagði í gríni að Affleck væri svo miklu klárari en náinn vinur hans Matt Damon, sem einnig vann eina milljón dollara verðlaun í Who Wants to Be a Millionaire ásamt Jeopardy!! stjörnunni Ken Jennings í fyrra.

Mynd

Affleck og Ding ákváðu þá að nota 50:50 björgunarlínuna til að útiloka tvö svör, og létu þá velja á milli þess að kljúfa atómið og fyrstu flugvélina.

Þau völdu rétt fyrstu flugvélina og komust að milljón dollara spurningunni, sem hljóðaði svona: „Í árlegri hefð á þakkargjörðarhátíðinni hvaða nöfn kalkúna er ekki eitt þeirra sem Bandaríkjaforseti hefur náðað?“

Svörin fjögur sem voru talin upp voru: Hnetusmjör og sulta, Tater og tot, Mac og Cheese og Spaghetti og kjötbollur.

„Þið hljótið að vera að grínast,“ sagði Affleck og lagði til að hringja í vin. Þegar vinur Dings svaraði ekki nógu snemma fylgdu þau ráðum Kimmels og völdu Spaghetti og Kjötbollur og unnu eina milljón dollara.

Eftir að hafa valið rétta svarið héldu Affleck og Ding hvor í annan á meðan þeir stukku upp og niður á meðan konfettí féll úr loftinu.