Skipuleggjendur Adidas Boost hlaupsins, sem fram fer í Elliðaárdalnum í dag, miðvikudaginn 29. júlí, hafa sent frá sér óvenjulega viðvörun til íslenskra hlaupara: Það er spáð sól og góðu veðri og þátttakendur eru hvattir til að mæta vel undirbúnir fyrir aðstæður sem hafa ekki beinlínis einkennt sumarið á höfuðborgarsvæðinu.
Allt stefnir í fjölmennt hlaup, en gert er ráð fyrir 400 þátttakendum í ár. Adidas Boost er 10 kílómetra götuhlaup og hefur brautin skapað sér orðspor fyrir að vera hröð og skemmtileg. Fjölmargir hlauparar hafa í gegnum árin valið hlaupið sérstaklega til að gera atlögu að persónulegu meti.
Tólfta Adidas Boost hlaupið
Adidas Boost var fyrst haldið árið 2015 og fer nú fram í tólfta sinn. Frumkvöðull hlaupsins er hlauparinn og hlaupaþjálfarinn Ívar Trausti Jósafatsson, sem hefur byggt viðburðinn upp undanfarinn áratug. Hlaupið hefur verið haldið árlega frá upphafi og náði miklum vinsældum á árunum fyrir heimsfaraldur. Árið 2019 skráðu sig rúmlega 600 hlauparar og 562 luku keppni.
Margir af fremstu langhlaupurum landsins hafa tekið þátt í Adidas Boost í gegnum tíðina. Arnar Pétursson er sigursælasti hlaupari mótsins frá upphafi með sjö sigra og hefur sett sterkan svip á sögu hlaupsins.
Arnar verður hins vegar ekki meðal keppenda í ár og því er ljóst að nýr sigurvegari verður krýndur í karlaflokki. Það ætti að bæta nokkurri spennu við keppnina í fremsta hluta hlaupsins.
Nýr kafli með Víkingamótunum
Tímamót verða jafnframt í ár þegar Víkingamótin taka í fyrsta sinn við framkvæmd Adidas Boost. Hlaupið verður þar með hluti af Víkingamótaröðinni ásamt Hengill Ultra, Reykjavík Trail og Garmin Eldslóðinni. Markmiðið er að byggja áfram á þeirri sögu og sérstöðu sem Adidas Boost hefur skapað sér, en um leið efla umgjörð hlaupsins og fjölga þátttakendum á næstu árum.
Og ef marka má veðurspána verður fyrsta Adidas Boost undir merkjum Víkingamótanna með nokkuð óvenjulegu yfirbragði miðað við það sem íslenskir hlauparar hafa þurft að venjast í sumar. Sól. Þátttakendur eru því hvattir til að finna sólgleraugun, huga að vökvun og rifja upp hvernig maður hleypur þegar það rignir ekki.
Skráning í Adidas Boost stendur yfir á vikingamot.is. og er opin til 18:00 í dag.
Adidas Boost – tólf ár af hraða, metnaði og hlaupagleði
Adidas Boost var fyrst haldið árið 2015 og verður hlaupið haldið í tólfta sinn sumarið 2026. Frá upphafi hefur markmiðið verið skýrt: að bjóða upp á hraða, skemmtilega og vel skipulagða 10 kílómetra braut þar sem bæði afrekshlauparar og almennir hlauparar geta náð sínum bestu tímum. Brautin um Elliðaárdal og Fossvogsdal hefur í gegnum árin öðlast orðspor sem ein hraðasta götuhlaupabraut landsins og þar hafa fjölmargir hlauparar sett sín persónulegu met.
Frá fyrsta degi lagði Ívar Trausti Jósafatsson metnað sinn í að byggja Adidas Boost upp sem gæðaviðburð og varð hlaupið fljótt fastur liður í íslenska hlaupasumarinu. Árið 2015 var meðal annars framleitt fyrsta drónamyndbandið af íslensku götuhlaupi sem vakti mikla athygli og markaði nýja nálgun í kynningu á hlaupaviðburðum.
Árið 2016 urðu mistök við uppsetningu hlaupsins þegar snúningspunktur var rangt staðsettur og hlaupið reyndist 8,7 kílómetrar í stað 10. Skipuleggjendur brugðust strax við, upplýstu þátttakendur um mistökin og tóku fulla ábyrgð á þeim. Atvikið varð jafnframt tilefni til enn markvissari gæða- og öryggisvinnu við framkvæmd hlaupsins á næstu árum.
Adidas Boost náði sínum mesta skráningarfjölda árið 2019 þegar rúmlega 600 hlauparar skráðu sig til leiks og 562 luku hlaupinu. Í kjölfarið höfðu heimsfaraldurinn og samkomutakmarkanir áhrif á þátttöku næstu ár, líkt og hjá flestum hlaupaviðburðum landsins, en hlaupið var engu að síður haldið ár hvert án undanbragða frá 2015 til dagsins í dag.
Á þessum tólf árum hefur Adidas Boost skapað sér sterka stöðu meðal íslenskra hlaupara. Hlaupið hefur laðað að sér marga af fremstu hlaupurum landsins, Arnar Pétursson er sigursælasti keppandi sögunnar og árið 2022 var Adidas Boost valið annað besta götuhlaup ársins í kosningu lesenda Hlaup.is.
Nú tekur við nýr kafli þegar Víkingamótin taka við framkvæmd hlaupsins. Markmiðið er að byggja áfram á þeim sterka grunni sem lagður hefur verið, varðveita sérstöðu Adidas Boost og þróa hlaupið áfram sem hluta af Víkingamótaröðinni, ásamt Hengill Ultra, Garmin Eldslóðinni og Reykjavík Trail.