Fókus

Sjáðu SÓT frá Stykkishólmi keppa á Wacken Metal Battle í Þýskalandi – Þú getur kosið

Mynd
SÓT frá Stykkishólmi keppa á Wacken Metal Battle klukkan 17:30 í dag.

Íslenska þungarokkshljómsveitin SÓT keppir í dag í Wacken Metal Battle sem fram fer á Wacken Open Air, stærstu þungarokkshátíð heims, í Þýskalandi.

SÓT, sem kemur frá Stykkishólmi sigraði undankeppnina á Íslandi í apríl og tryggði sér þátttökurétt í lokakeppninni.

Fyrsti dagur keppninnar fer fram og hægt er að fylgjast með honum hér í streymi. SÓT stígur á svið klukkan 17:30 að íslenskum tíma.

Alls keppa 31 þungarokkssveitir frá flestum heimshornum. Hægt er að greiða atkvæði hér.