Fókus

Óvænt „ofurfæðutegund“ getur bætt kynlífið

Mynd

Við höfum öll heyrt um kynörvandi efni eins og ostrur sem auka kynhvöt. Sérfræðingur segir eina fæðutegund einnig geta hjálpað í þessum efnum.

Hugtakið ofurfæða er óvísindalegt hugtak sem notað er til að lýsa næringarríkum matvælum sem hafa jákvæð áhrif á heilsu. Má þar nefna til dæmis grænt te, egg og ber.

Steven Bartlett, kynnir hlaðvarpsins Diary of a CEO , bauð þvagfærasérfræðingnum og sérfræðingnum í kynheilbrigði, Dr. Renu Malik, í þáttinn þar sem þau ræddu allt sem viðkemur kynheilbrigði.

Þótt Malki hafi sagt að henni líkaði ekki að tala um „ofurfæði“, þá sagði hún að ofurfæði þurfi að vera hluti af öllu „mataræði“ og hnetur eins og pistasíuhnetur hafi fjölda kosta.

Mynd

„En auðvitað er mikilvægt að borða hnetur vegna þess að þær innihalda frábærar omega-3 fitusýrur, þær innihalda hollar fitur, og þetta eru ástæðurnar fyrir því að þær bæta mataræðið.“

Malik hélt síðan áfram og sagði að matvæli sem eru full af andoxunarefnum, þar á meðal litríkir ávextir eins og bláber og sítrusávextir, hefðu reynst „draga úr tíðni ristruflana“.

Matvæli eins og pistasíuhnetur sem eru full af andoxunarefnum hafa fjölda kosta og „gegna lykilhlutverki í að draga úr hættu á ákveðnum heilsufarsvandamálum, svo sem krabbameini,“ segir HealthLine. Þau eru sérstaklega rík af andoxunarefnunum pólýfenólum og tókóferólum sem geta einnig hjálpað til við að draga úr hættu á hjartasjúkdómum.

Samkvæmt HealthLine gegna þessi matvæli mikilvægu hlutverki í að efla heilbrigði æða, þar sem hnetur eins og þessar „eru uppspretta amínósýrunnar L-arginíns, sem umbreytist í köfnunarefnisoxíð í líkamanum.“

Mynd

En hvernig hjálpar þetta í svefnherberginu? Gott blóðflæði er nauðsynlegt fyrir stinningargetu. Við kynlífsörvun víkka slagæðar út til að auka blóðflæði til limsins.

Fjölmargar rannsóknir hafa einbeitt sér að tengslum milli matvæla og kynlífs fólks, en ekki bara stinningu.

Ein rannsókn, sem gerð var árið 2019, „mat áhrif blandaðra hneta á stinningargetu og kynlíf“ hjá 83 körlum á aldrinum 18-35 ára og sá framfarir í kynhvöt hjá þessum körlum. Árið 2014 kom fram í annarri rannsókn að regluleg neysla þessara bragðgóðu hneta „bætti stífleika æða“.