Fókus

María og Elli greina frá nafni sonarins

Mynd
Hjónin María Birta og Elli Egilsson. Mynd/Aðsend

Hjónin María Birta Bjarnadóttir Fox leikkona og Elli Egilsson Fox listamaður greindu frá því í færslu á Instagram að sonur þeirra hefi fengið nafnið Isaiah Ellason Fox. Soninn ættleiddu þau síðasta sumar og fyrir áttu hjónin tvær ættleiddar dætur. 

„Fox fjölskyldan er svo heppin að bæta við sig öðrum rebbaling. Systur hans eru afar skotnar í honum og kyssa hann og knúsa í klessu alla daga! Ignacia kallar hann ZayZay, Naja kallar hann BigBoy aka Big Boy Sandwich, pabbi kallar hann Biggie og mamma kallar hann Gússi Músadúskason. Við kynnum með stolti, son okkar, Isaiah Ellason Fox,“ 

skrifar María á Instagram og birtir með fjölskyldumynd.

Fjölskyldan býr í Los Angeles í Bandaríkjunum og hafa hjónin búið þar um árabil. Hjónin  urðu bandarískir ríkisborgarar fyrir tveimur árum og tóku þá upp eftirnafnið Fox. Hjónin hafa einnig síðastliðin fimm ár tekið að sér fósturbörn í tímabundið fóstur.

Listasýning Ella og eldri dótturinnar, Ignaciu, fjögurra ára, stendur ný yfir í gallerí Herma á Hverfisgötu 4.