Fókus

Glímdi við átröskun í 2 áratugi - Taldi kaloríur í tannkreminu

Mynd
Hilaria Baldwin.

Átröskun Hilariu Baldwin varð svo alvarleg að hún fór að telja hitaeiningarnar í tannkreminu sínu.

Jógakennarinn, sem nú leikur í þáttaröðinni Nation's Dumbest  á Fox, lýsti 20 ára erfiðleikum sínum í viðtali við Page Six útvarpsstöðina á SiriusXM á þriðjudagsmorgun.

„Ég glímdi við þetta allt. Ég var með lystarstol, ég var með lotugræðgi, ég ofát, ég vanát,“ sagði Baldwin við meðkynnendurna Danny Murphy og Evan Real og tók fram að það hafi orðið svo slæmt á einum tímapunkti að hún var „hrædd við hversu margar hitaeiningar gætu verið í tannkremi.“

Baldwin, sem nú er 42 ára, sagði að hún hefði „byrjað að fara á megrunarkúr“ fimm ára gömul.

Mynd
Hjónin Hilaria og Alec Baldwin.

Baldwin, sem á sjö börn með eiginmanni sínum, leikaranum Alec Baldwin, bætti við að þegar hún eltist hefði hún „átt mjög erfitt“ með að vita ekki hvenær hún væri svöng eða södd.

„Ég lít til baka og ég leit vel út,“ sagði hún. „En ég hélt að ég væri hvalur. Ég hélt bara að eitthvað væri brotið inni í mér.“

Baldwin sagðist hafa lagt mikið á sig til að sigrast á átröskun sinni áður en hún fór að eignast börn, og sagði að ADHD hefði gert hana ofur-einbeitta á bata.

„Ég vil ekki lifa svona; ég er vansæl,“ sagði hún í erfiðleikum sínum. „Ég get ekki átt góð sambönd, ég get ekki átt góð vináttubönd, ég get ekki farið út að borða með fólki. Það er bara svo stressandi.“

Hilaria sagði að hún „vildi ekki færa“ sömu erfiðleika yfir á börnin sín, svo hún leggur sig fram um að eiga opinskáar og einlægar samræður við þau um mat. „Það sem ég reyni að gera við börnin mín er að styrkja þau, tala um styrk, tala um: Hvernig líður þér með matinn?“ útskýrði Hilaria.

Þó hún sé ekki alltaf sammála því að börnin sín borði óhollt snarl eins og Cheetos, þá „skammar“ hún þau ekki heldur fyrir að borða slíka fæðu. 

Baldwin ræddi fyrst opinskátt um baráttu sína við átröskun í endurminningum sínum frá árinu 2016, The Living Clearly Method. Hún lýsti bataferli sínu nánar í færslu á Instagram árið 2018.

„Ég hef komist að því að það að vera heilbrigður snýst um að einblína ekki á þyngdina heldur frekar á hvernig mér líður, hversu sterk ég er og hversu heilbrigð ég er,“ skrifaði hún þá. „Þyngd og útlit eru aukaverkanir. Ekki aðaláherslan. Þegar ég byrjaði að einblína á heilsuna hvarf þráhyggja mín fyrir þyngdinni. Þessu ætti ekki að rugla saman.“