Fókus

Frægur rabbíni vinnur að heimildarmynd um Ísland: „Við ætlum að reyna að komast til botns í þessu“

Mynd
Skjáskot/Facebook

Rabbíninn Shmuley Boteach er nú staddur á Íslandi og vinnur nú að gerð heimildarmyndar um landið og vill hann sérstaklega komast til botns í því hvers vegna margir eru á móti Ísrael. Fram kemur á vefsíðu Boteach að hann hafi skrifað 30 bækur og bæði Washington Post og Newsweek hafi kallað hann „frægasta rabbína Bandaríkjanna“. Hefur hann meðal annars komið fram í þáttum Opruh Winfrey og Dr. Phil.

Boteach er mjög harður stuðningsmaður Ísraels og einnig Donald Trump Bandaríkjaforseta. Hefur Boteach komið Ísrael til varnar eftir gagnrýni á framgöngu Ísraela á Gaza. Synir hans börðust með Ísraelsher á Gaza, er Mendy sonur hans með honum hér á Íslandi.

„Við ætlum að gera heimildarmynd hér á Íslandi,“ segir hann. „Ég byrjaði að halda fyrirlestra fyrir samfélag gyðinga hér, samfélagið var örsmátt, bara 30, 40, 50 manns, nú eru þetta um þúsund manns. Ísland er mjög framsækið og frjálslynt og var meira að segja með ísraelska forsetafrú, Dorrit Moussaieff, hún var gift forseta Íslands, mjög stolt ísraelsk kona.“

„Hvers vegna eru svona margir á móti Ísrael hér? Mig langar að skilja það. Lönd sem eru ekki með gyðinga eru svo oft með alvarlegt gyðingahatur. Það var reynt að banna umskurð hér á landi, sumir litu svo á að bannið væri beint gegn múslimum, aðrir sem gegn gyðingum, sumir bæði, en því var hafnað og umskurður er leyfður.“

Þá megi ekki slátra dýrum á réttan hátt. „Það er mjög erfitt að kosher kjöt hérna,“ segir hann.“

„Lönd sem eru ekki með gyðinga og eru mjög framsækin, af hverju eru þau á móti Ísrael? Af hverju eru þau með Palestínu? Það er eitt af þessu sem við ætlum að reyna að skilja. Við ætlum að reyna að komast til botns í þessu.“

Mynd
Boteach með Michael Jackson. Eftir dauða Jacksons skrifaði rabbíninn bók upp úr viðtölum sínum við hann. Mynd/Getty

Boteach var mjög náinn söngvaranum Michael Jackson á tímabili en rabbíninn var á Íslandi þegar Jackson lést árið 2009. „Við vorum uppi á jökli á fjórhjóladrifnum trukki þegar ég fékk hræðilegu fréttirnar. Ég var á Íslandi þegar það voru tekin við mig mörg viðtöl, mjög sorglegir dagar.“

Hann hefur birt mörg myndbönd af sér á Íslandi og dásamar náttúruna. 

„Í dag eru löndin sem eru hvað mest á móti Ísrael í Evrópu Írland og Ísland. Bæði eru þetta lönd sem vernda réttindi hinsegin fólks, sjáiði bara hvað gerðist í Berlín þegar íslamisti keyrði bíl inn í hinseginsamkomu og drap eina manneskju og særði marga. Hvers vegna skilja ekki þessi lönd að í Miðausturlöndum er land með sömu gildi. Við ætlum því að fara um allt land og tala við fólk um þetta.“