Fókus

Allir og amma þeirra settu saman lista yfir góða veitingastaði hringinn í kringum landið

Mynd
Margir en ekki allir. Samsett mynd/Getty

Nú þegar landsmenn eru að ferðast um landið þá vaknar gjarnan upp spurningin hvar á að fá sér að borða, það er ekki alltaf augljóst þegar fólk er ekki kunnugt staðarháttum. Síðustu helgi tók DV saman lista Tripadvisor yfir bestu veitingastaðina hringinn í kringum landið en sá listi er nokkuð takmarkaður og háður umsögnum notenda. 

Samfélagsrýnirinn Karen Kjartansdóttir bjó til lista yfir góða veitingastaði á landsbyggðunum og kallaði eftir hugmyndum, segja má að allir og amma þeirra hafi brugðist við og úr varð langur listi. Meðal þeirra sem brugðust við eru forseti Alþingis, þingmenn, fyrrum þingmenn, fjölmiðlafólk og aðrir þekktir úr þjóðfélaginu. 

Fókus tók það að sér að flokka staðina niður á landshluta til að ferðalangar eigi auðveldara með að fá yfirsýn. Byrjað er á Suðurlandi og endað á Vesturlandi. 

 

Suðurland

Karen sjálf nefnir þrjá staði á Suðurlandi: Super1Pizza í Þorlákshöfn, Hygge á Hellishólum í Fljótshlíð og  Gallerí Pizza á Hvolsvelli, sem hún lýsir sem fornfrægum og klassísku.

Útvarpsstjarna sumarsins Margrét Erla Maack nefnir The Food Truck á Hvolsvelli, blaðamaðurinn Ólafur Arnarsson tekur undir það. 

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir hjá BSRB mælir með Birki á Höfn. Egill Helgason fjölmiðlamaður tekur undir með Birki, hann mælir einnig með Pakkhúsinu á Höfn.

„Ég hef mikla reynslu af þessu eftir mikil ferðalög um landið síðasta áratuginn. Það er hægt að fá alveg jafngóðan eða betri mat úti á landi en í Reykjavík,“ segir Egill.

Ásgeir Brynjar Torfason lektor við HÍ mælir með  Landsins besta taco í Hveragerði og Hvönn í Skálholti. 

Dr. Gunni mælir með eþíópíska veitingastaðnum Minilik á Flúðum. „Bæði góður og mjög hagstæð verð,“ segir doktorinn. Blaðamaðurinn Ágúst Borgþór Sverrisson mælir líka með þeim stað. 

Þingkonan Ása Berglind Hjálmarsdóttir segir: „Thai Sakhon Restaurant einn besti Thai staður landsins er í Þorlákshöfn. Cafe Vatnajökull í Öræfum, skyldustopp á leiðinni austur.“

Frumkvöðullinn Hjálmar Gíslason segir: „Gæti nefnt marga, en borðaði í gær í fyrsta skipti á Ylju í Laugarási. Besta máltíð í langan tíma!“

Þó að Björn Teitsson sé borgarfræðingur þá er hann greinilega vel kunnugur landsbyggðinni: „Langar að mæla með Hostelinu í Héraðsskólanum á Laugarvatni. Ekki fine dining en mjög fínn skyndibiti, börrar og pizzur, á virkilega samkeppnishæfu verði. Svo er bara yndislegt að vera í þessari fallegu byggingu, matsalurinn stór og rúmur, fullt af gamaldags leikföngum f. börn og æðislegt útsýni yfir vatnið.“

Það er af nógu að hafa í Vestmannaeyjum þó það drífi ekki allt inn á listann, Margrét Erla mælir með Næs og fjölmiðlakonan Olga Björt Þórðardóttir mælir með Gott.

Austurland

Bæði Sigríður Ingibjörg og Egill mæla með Ask á Egilsstöðum, þeir sem hafa farið þangað vita hvað það bragðast vel. Egill mælir einnig með Norð-Austur á Seyðisfirði.

Ráðherrann fyrrverandi Oddný Harðardóttir mælir með Kaffi Sumarlínu á Fáskrúðsfirði.

Dr. Gunni segir: „Beituskúrinn á Neskaupstað er fínn.“

Norðurland

Framleiðandinn Skarphéðinn Guðmundsson mælir með Verbúðinni 66 í Hrísey: „Einn allra besti fiskur og franskar á landinu og í raun allt gott á fremur einföldum en skotheldum matseðli. Nota frábært ferskt hráefni úr héraði og þar á meðal hríseysku hvönnina - síðast þegar ég vissi.“

Dagskrárgerðarkonan Þórgunnur Oddsdóttir mælir með Lyst í Lystigarðinum á Akureyri. „Fiskurinn þar í hádeginu er alltaf æði,“ segir hún. Hinrik nokkur þekkir góða borgara: „DJ Grill á Akureyri er besti hamborgari í heimi,“ segir hann.

Fjölskyldufræðingurinn Kristín Tómasdóttir og upplýsingafulltrúinn Freyr Rögnvaldsson mæla hiklaust með Siglunesi á Siglufirði, segja það gríðarlega góðan marokkóskan veitingastað.

Brynhildur Björnsdóttir leikkona mælir með Dalakofanum á Laugum í Reykjadal.

Anna Pála Sverrisdóttir, lögfræðingur með meiru, mælir með Baccalá Bar á Hauganesi rétt við Fjöruböðin. „Fengum svo gjebbaðan fisk og franskar þar,“ segir hún.

Ólafur Stephensen hjá Félagi atvinnurekenda segir: „Kaffihús Bakkabræðra á Dalvík. Frábær fiskisúpa.“

Skákhetjan og fyrrum ritstjórinn Björn Þorfinnsson mælir með Sjávarborg á Hvammstanga og Harbour á Skagaströnd. Hann mælir einnig með Oak í Mosfellsbæ, væntanlega fyrir þá sem vilja fara pakksaddir inn eða út úr höfuðborginni.

Vestfirðir

Guðmundur Hrafn Arngrímsson hjá Leigjendasamtökunum er hrifinn af French touch café í Bolungarvík. „Alger demantur, hugsanlega best geymda leyndarmál Vestfjarða,“ segir hann.

Egill, Dr. Gunni og Nichole Leigh Mosty mæla með Tjöruhúsinu á Ísafirði. „Tjöruhúsið á Ísafirði er svo góður að maður leggur eiginlega á sig sér ferð til að eta þar,“ segir Dr. Gunni.

Guðbjörg nokkur mælir með Café Riis og Galdur Brugghús á Hólmavík. Þingmaðurinn Sigmundur Ernir Rúnarsson mælir með Stúkuhúsið á Patreksfirði, Vegamót á Bíldudal og Café Norðurfjörður.

Vesturland

Plötusnúðurinn Atli Viðar Þorsteinsson mælir með Hjá Góðu Fólki á Snæfellsnesi. „Pönnupizzur og fleira, mjög næs og gott væb. 2 mín frá Vegamótum.“

Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, mælir með Narfeyrarstofu á Stykkishólmi. 

Anna Sigrún Baldursdóttir, aðstoðarmaður ráðherra segir: „Sjávarpakkhúsið í Stykkishólmi er à Michelin-kvarða.“ Egill mælir einnig með þeim stað.