Fókus

Vill borga Íslendingum fyrir að auglýsa í ræktinni

Mynd
Stefán Atli Rúnarsson.

Stefán Atli Rúnarsson, sem stendur meðal annars að ChatGPTnámskeið.is, hefur sett af stað óvenjulega tilraun þar sem hann leitar að fólki sem fer reglulega í líkamsrækt og er tilbúið að mæta í merktum bol gegn greiðslu.

Stefán birti færslu á samfélagsmiðlum þar sem hann hvatti vini sína til að merkja fólk sem stundar ræktina mikið.

„Ég er að gera smá tilraun hérna. Ef þú ferð sjálfur mikið í ræktina þá er ég tilbúinn að borga þér fyrir að vera í merktum bol,“ skrifaði Stefán.

Viðbrögðin létu ekki á sér standa og hafa nú um 50 manns sýnt verkefninu áhuga.

Mynd

Hugmyndin kviknaði út frá því að prófa nýja nálgun í markaðssetningu og sjá hvort hægt væri að nýta raunverulega einstaklinga sem eins konar „gangandi auglýsingaskilti“ á stöðum þar sem mikið fólk kemur saman.

„Við erum orðin vön því að sjá endalausar auglýsingar á Facebook, Instagram og TikTok. Mig langaði einfaldlega að prófa eitthvað allt annað. Ef einhver fer fjórum eða fimm sinnum í viku í ræktina, hvers vegna ekki að borga viðkomandi fyrir að vera í flottum merktum bol á meðan?“ segir Stefán.

Bolurinn sem Stefán hefur sjálfur prófað að klæðast í ræktinni auglýsir ChatGPTnámskeið.is með skilaboðunum „Margfaldaðu afköst þín með hjálp gervigreindar.“

Stefán segir að áhuginn hafi komið honum skemmtilega á óvart.

„Ég bjóst alveg við að einhverjir myndu hafa áhuga, en það kom mér á óvart hversu hratt viðbrögðin komu. Nú hafa um 50 manns sýnt þessu áhuga, þannig að það er greinilega fólk tilbúið að prófa eitthvað nýtt. Það er líka fullt af fólki að tagga vini sína og spyrja mig nánar út í þetta“ segir Stefán.

„Þetta er fyrst og fremst tilraun. Kannski virkar þetta frábærlega og kannski alls ekki. En það skemmtilega við markaðssetningu er að prófa hluti sem enginn annar er að gera.“

Áhugasamir sem fara reglulega í líkamsrækt geta haft samband við Stefán í gegnum netfangið stefanatl93@gmail.com og tekið fram hversu oft þeir mæta í ræktina.