Þungarokkstónleikar í háskólabænum Dunedin í Nýja Sjálandi breyttust skyndilega í hreina martröð þegar einn tónleikagesturinn veiktist. Missti hann saur á dansgólfið með þeim afleiðingum að klígjan breiddist út og fólk byrjaði að kasta upp á hvert annað.
Greint er frá þessu í vefmiðlinum Ladbible.
Það var laugardagskvöldið 25. júlí síðastliðinn þegar nýsjálenska þungarokkshljómsveitin Devilskin steig á stokk á tónleikum í sal Otagio Union háskólans í Dunedin, næst fjölmennustu borg Suðureyju. Engum grunaði hvernig þetta kvöld myndi enda.
Hljómsveitin byrjaði tónleikana, lék nokkur lög og allt gekk vel. Á gólfinu hafði myndast góður „mosh-pyttur“, það er að gestirnir voru byrjaðir að hlaupa í hringi og þeyta flösu að stæl þungarokkara. Allt í góðu glensi.
Brátt í brók
En eftir nokkur lög kom babb í bátinn. Einum tónleikagestanna varð brátt í brók og hafði ekki nægan tíma til að komast á salerni. Hann gerði í sig í miðjum moshpyttinum.
Einn tónleikagesturinn, Damian Radburnd að nafni, lýsti þessu í viðtali. Sagðist hann hafa fundið lyktina af skítnum löngu áður en hann sá hann. En Damian þessi og unnusta hans voru mjög nálægt hinum veika manni.
„Gaurinn, sem var beint fyrir framan mig, byrjaði að hrista lortinn niður buxnaskálmina sína,“ segir Damian.
Hafi maðurinn svo reynt að losa sig við sönnunargagnið og sparka því í burtu, en það hafi aðeins gert ástandið verra. Endaði hann á að stíga í kúkinn og kremja hann.
„Við fórum nokkrum metrum frá þessu, síðan áttaði ég mig á því að ég þyrfti að láta öryggisgæsluna vita,“ segir Damian. „Einn öryggisvörður kom aðvífandi og við gátum fundið manninn sem gerði þetta og ófögnuðinn á gólfinu.“
Breiddist hratt út
En það var of seint. Fólkið í pyttinum var í miklum hamagangi og fleiri og fleiri stigu í skítinn. Það þýddi að fólkið dreifði skítnum um allt gólfið og lyktin magnaðist upp.
„Óþefurinn olli því að fullt af fólki kúgaðist og ældi,“ segir ónefndur tónleikagestur. Eins og vill oft verða þá „smitaðist“ klígjan um allan salinn. „Fólk byrjaði að æla út af ælunni,“ segir hann.
„Er einhver veikur?“ spurði Jennie Skulander, söngkona Devilskin sem áttuðu sig á því að eitthvað alvarlegt var að gerast og stoppuðu samstundis tónleikana. Fólkinu var komið út í ferskt loft og salurinn þrifinn.
Ekki viljaverk
Í yfirlýsingu frá tónleikahaldaranum, stúdentafélagið Otago háskóla, segir að atvikið hafi verið heilbrigðistengd óhapp. Viðkomandi hafi ekki viljandi ætlað að kúka á gólfið. Honum hafi verið fylgt af öryggisgæslunni út úr salnum.
Devilskin hafa gantast með atvikið. Á samfélagsmiðlasíðu sinni segjast þau bjóða upp á „dómsdags bleyjur“ (diaper of doom) til að koma í veg fyrir að þetta gerist aftur.