Fókus

Slítur löglega öll tengsl við afskiptalausan föður

Mynd

Tvítug dóttir leikaranna Tom Cruise og Katie Holmes, Suri Cruise, hefur löglega breytt eftirnafni sínu í Noelle. Opinber gögn sýna að Suri skráði sig til að kjósa í Pennsylvaníu, þar sem hún býr nú, í október 2024 á fyrsta ári sínu við Carnegie Mellon háskólann. Hún skráði sig í Allegheny-sýslu undir nafninu Suri Noelle, sem gefur til kynna að það sé löglegt nafn hennar.

Page Six greinir frá og segir Noelle allt benda til að hú hafi breytt nafni sínu í New York áður en hún fór í háskóla. Áður en Suri flutti til Pennsylvaníu bjó hún með móður sinni, í New York, þar sem beiðnir um nafnabreytingar eru annað hvort sjálfkrafa innsiglaðar eða innsiglaðar að beiðni.

Suri hefur ekki átt í sambandi við föður sinn stærstan hluta ævi sinnar, en komst fyrst í fréttirnar fyrir að nota ekki eftirnafn hans í útskriftarbæklingi sínum frá LaGuardia menntaskólanum í júní 2024. Á þeim tíma var sagt að Suri væri að „sýna móður sinni hrós“ með því að nota Noelle, millinafn Holmes, á svo þýðingarmikinn hátt.

Suri hefur leiklistarbakteríuna frá foreldrum sínum,  hún fékk aðalhlutverkið sem Morticia Addams í The Addams Family: A New Musical. Hún stundar nú nám í söngleikjum við leiklistarskóla CMU. Síðar í vikunni mun hún leika í leikritinu Midsummer!, nútímaútgáfu af A Midsummer Night's Dream eftir Williams Shakespeare,  ásamt öðrum nemendum CMU í Peirce Studio Trust Arts Education Center í Pittsburgh. Verkið verður frumsýnt í Bretlandi á Edinborgarhátíðinni 2026 í næsta mánuði.

Tom og Holmes eignuðust Suri í apríl 2006 og giftu sig sjö mánuðum síðar. Eftir skilnað þeirra í ágúst 2012, bjó Suri alfarið hjá móður sinni.

Mynd