Fókus

Ragnhildur og Dawn hundskamma netverja fyrir líkamssmánun - „Krumpaðar sálir - typparækjur!“

Mynd

Andy Burnham leiðtogi Verkamannaflokksins tók við embætti forsætisráðherra Bretlands þann 20. júlí, sá sjötti á síðastliðnum áratug og sá sjöundi síðan Bretland yfirgaf Evrópusambandið. 

Burnham er giftur hinni hollensku Marie-France van Heel, sem hefur margt á ferilskránni annað en eiginmann sinn. Þrátt fyrir það var það hvorki kostir hennar né eiginmannsins sem var helst minnst á í athugasemdum fjölmiðla í Bretlandi þegar Andy tók við lyklavöldunum í Downingstræti 10 eða þegar hjónin mættu til fundar til konungshjónin í Bretlandi.

Heel, þekkt sem Frankie, klæddist pastellituðum kjól frá breska merkinu Victoriu Beckham í tilefni dagsins, sem varð til þess að virkir í athugasemdum létu orð falla um útlit hennar sem hefur verið lýst sem kynfordómafullum og skammarlegum.

Ragnhildur Þórðardóttir, Ragga nagli, skrifaði pistil um málið á Facebook-síðu sína sem nýtur mikilla vinsælda.

„Innfæddir grínast með að vikulega sé nýr íbúi í Downing Stræti númer tíu. En nýjum forsætisráðherra fylgir iðulega nýr maki, og í þetta skiptið hin hollenska Marie-France van Heel.“ 

Mynd

Víðförul, talar mörg tungumál, rak eigið fyrirtæki og sat í stjórn mannúðarsamtaka

Ragga rekur næst helstu atriði ævi Heel: Hún fæddist í Bandaríkjunum, og á æskuárunum bjó hún víðs vegar um heiminn, til dæmis á Filipseyjum og í Frakklandi. Hún talar fjölmörg tungumál og lærði ensku í Cambridge þar sem hún varð ástfangin af téðum Andy. Heel hefur unnið sem markaðsfræðingur, meðal annars hjá Sky, og rak sína eigin auglýsingastofu um árabil sem hannaði lógó fyrir BBC og enska rugby liðið. Hún hefur setið í stjórnum margra mannúðarsamtaka á borð við Marie Curie, Alzheimer samtökin, og Plan International sem fókusar á réttindi barna í 80 löndum, Afríku og Asíu og S-Ameríku. Eftir andlát systur sinnar úr brjóstakrabbameini árið 2010 lét hún fjarlægja bæði brjóstin því hún var með BRCA genið. Þau Andy eiga þrjú börn.

„En þegar Andy tók við lyklavöldum í Downing voru athugasemdir við myndasyrpuna ekki píp um hvað hann ætlar að gera í húsnæðisvandanum, áætlanir hans um heilsu kvenna, að hann hafi skipað konur í helming ríkisstjórnar sinnar.

Internetið fékk gyllinæð og heilablóðfall yfir Marie sem gerðist sek um þann ófyrirgefanlega glæp að maginn sást í gegnum kjólinn. Maginn sem gekk með börnin þeirra. Maginn sem hefur melt næringuna sem hefur knúið áfram heilabúið hennar fyrir akademísk afrek og leggja gott af mörkum í veröldinni.

Krumpaðar sálir og krepptar tær í alltof þröngum lakkskóm ruddust fram á lyklaborðið. Fólk sem á ekki áhugamál eða innihaldsríkt líf sendu óumbeðið álit á kjólavalinu út í kosmósið. Sjálfskipaðir stílistar tjáðu að þessi litur væri nú ekki klæðilegur fyrir vöxtinn hennar.“

Nefnir Ragga dæmi um nokkrar athugasemdir: 

„Á konan ekki spegil?

Kjóllinn er tveimur númerum of lítill.

Maginn á henni sést í þessum kjól.

Hún þarf stílista.

Af hverju sagði enginn við hana að þessi litur er ekki klæðilegur fyrir hennar vöxt.

Hvers konar skilaboð eru til þegna landsins að vera í kjól eftir Victoriu Beckham sem kostar 850 pund.

Ekki vera í VB kjól ef þú ert yfir stærð 8.“

Mynd

Engar athugasemdir um forsætisráðherrann

Ragga bendir á að enginn hafi tjáð sig um jakkafötin hans Andy né mittismál hans.

„Ekki píp um allt það merkilega sem þessi kona hefur áorkað í lífinu. Hvað hún muni mögulega bera á borð meðan spúsi hennar stýrir heimsveldinu. Afrek og árangur ekki til umræðu.

Nei krakkar.... mennskan sökk í mýrina....það var dulan sem hún klæddist þennan sólríka dag í Lundúnaborg sem umræðan snerist um. Skrokklegar umbúðirnar fengu dálkarýmið. Að kona sé með maga sem sést í spjör er fyrir sumum eitthvað sem er ófyrirgefanlegur glæpur sem þarf að vekja athygli á.“

Ragga bendir á að þó að Heel sé opinber manneskja hafi hún líka tilfinningar. Segir hún líkama konu yfirleitt það sem er mest óspennandi við hana. 

„Er hún hjartahlý, greind, fyndin, skemmtileg, dugleg og sterk? Líkamar kvenna eru ekki eins og fyrirtæki á Google þar sem óumbeðið álit fær að valsa óáreitt. Það er enginn að biðja um stjörnugjöf. Getum við ekki plís og por favor einblínt á innvolsið?

Og í þessu tilfelli á málefni og stefnur hjá kallinum hennar. Gerum betur!!“

Dawn French mun harðorðari en Ragnhildur

Breska leikkonan Dawn French var ekki jafn kurteis og Ragga nagli. Á föstudag deildi hún myndbandi af sér á Instagram þar sem hún hraunar yfir netverja og gagnrýnir „einelti“ vegna athugasemda um konu sem hún nafngreinir ekki. Ljóst er þó að French á þar við Heel.

„Svo, kona ... eðlileg manneskja stendur þarna og það eina sem hægt er að tala um er klæðnaður hennar og líkami. Hvernig vogar þú þér að skamma hana fyrir eigin líkama?“ hélt hún áfram. „Þetta er klár kona sem talar mörg tungumál; hún hefur rekið fyrirtæki, hún hefur staðið frammi fyrir áskorunum sem þú myndir ekki einu sinni byrja að ímynda þér. Þú hefðir ekki helvítis hugrekkið til þess.Hættið þessu! Hættið að leggja fólk í einelti! Þetta er manneskja með mannslíkama!“ sagði hún að lokum.

French var ekki að spara í myndatexta við myndbandið heldur og skrifaði: „Hættið að líkamssmána fólk, typparækjur!!!“

Ummæli leikkonunnar birtust eftir að Heel og Burnham fóru á fund með Karli konungi.