Fókus

Opnar sig um átröskun og kvíðaköst

Mynd
Camila Mendes.

Leikkonan Camila Mendes hefur opnað sig um vandamál sín með fullkomnunaráráttu og hvernig hún hefur haft áhrif á bæði líf hennar og feril.

Síðasta hlutverk Mendes (32) var Teela í kvikmyndinni Masters of the Universe. Í viðtali við Jay Shetty í hlaðvarpi hansræddi Mendes um baráttu sína við átröskun og kvíðaköst á meðan hún lék í sjónvarpsþáttunumRiverdale, sem lauk árið 2023. Segir Mendes að hún hafi glímt við átröskun síðan í menntaskóla en hún hefði versnað við tökur á sjónvarpsþáttunum vinsælu.

„Þá fór ég virkilega að horfast í augu við þetta,“ sagði hún við Shetty. „Og ég fann fyrir stjórnleysi því ég er í búningi fyrir persónu sem klæðist öðruvísi en ég myndi vilja klæða mig í daglegu lífi.“

„Fullkomnunarárátta mín kom oft upp“

Mendes, sem lék Veronicu Lodge í sjónvarpsþáttunum, hélt áfram: „Hún er í þröngum kjólum, minipilsum og hælum og sýnir magann á mér, mjóa mittið eða hvað sem er. Og ef ég var uppþembd eða ef mér leið ekki vel með sjálfa mig þann daginn, þá þurfti ég að vera í einhverju sem lét mér líða verr og gerði mig mjög óörugga. Og þetta fullkomnunarmynstur birtist mikið í sambandi mínu við líkama minn.“

Þetta var eitthvað sem kallaði fram kvíðaköst hjá Mendes því henni leið „svona ógeðslega“ og átti erfitt með að sætta sig við útlit sitt, en hún þurfti samt að vera daglega fyrir framan myndavélarnar. Það sem gerði kvíðaköst hennar verri var sú staðreynd að henni fannst hún ekki hafa rými til að vinna úr því sem hún var að ganga í gegnum á þeim tíma.

Mynd
Mendes og Lili Reinhart í hlutverkum sínum í Riverdale.

„Ég þurfti að vera í einhverju sem lét mér líða verr“

„Ég er manneskja sem upplifir ekki kvíðakast því ég fæ aðeins kvíðakast ef mér finnst, af einhverjum ástæðum, að ég megi ekki finna fyrir þeirri tilfinningu sem kemur. Svo ef mér finnst eins og ég vilji gráta og ég veit að ég get það ekki, þá mun það valda mér kvíðakasti.“

Segir Mendes að henni hefði liðið betur hefði hún haft rými til að vinna úr tilfinningum sínum.

„Ef mér væri sagt: „Þú hefur klukkustund“, þá myndi ég segja: „Frábært. Ég ætla að gráta aðeins. Ég verð tilbúin eftir klukkustund,“ sagði Mendes, „en þú hefur ekki klukkustund. Ég hef ekkert í móti því að gráta bara út í smá stund, láta það út því stundum er það allt og sumt. Maður þarf bara að losa orkuna,“ bætti hún við.

Mendes segist hafa elskað að vera í Riverdale, sem stóð yfir í sjö þáttaraðir.

„Það voru ekki allir dagar svona,“ hélt hún fram. „Mér fannst þáttaröðin svo frábær, misskiljið mig ekki. Ég lít til baka með mikilli hlýju. Það var bara að vera ungur og hafa ekki stjórn á skipulaginu í lífinu. Það var mjög erfitt.“