Fókus

Leikari Hringadróttinssögu þurfti að selja hús sitt - Launin lág fyrir þríleikinn

Mynd
Sean Astin

Sean Astin varð frægur sem barnastjarna fyrir meira en fjórum áratugum, þegar hann lék Mikey Walsh í The Goonies . Næstum tveimur áratugum síðar fékk hann hlutverk sem Samwise Gamgee í þríleiknum Hringadróttinssögu, en á bak við tjöldin var það ekki bara glamúr og glimmer.

Fyrsta myndin í þríleiknum um Hringadróttinssöguna, Föruneyti hringsins (e. Fellowship of the Ring),  kom út árið 2001 og gerði Astin frægan um allan heim. Hins vegar segir hinn nú 55 ára gamli leikari að hann hafi ekki verið tilbúinn fyrir það sem átti eftir að gerast.

„Ég var ekki undirbúinn fyrir þetta stig sýnileika og aðgengis,“ sagði hann við Guardian. „Og það var gjá milli athyglinnar sem ég fékk og þess hversu mikla peninga við höfðum.“

Astin hélt áfram og sagði að þetta væru „ekki miklir peningar“ og í raun hefði hann þurft að selja húsið sitt.

„Ég samdi um svo litla upphæð fyrir þríleikinn,“ sagði hann, þótt hann staðfesti að hann væri nú „mjög öruggur“ ​​fjárhagslega.

Árið 2017 afhjúpaði Astin í Jim & Sam Show að honum hefði verið boðnir „250.000 dollarar í eitt og hálft ár“ en hann hefði skrifað undir 250.000 dollara veðlán á ári áður en hann hóf tökur.

„Ég fór í áheyrnarprufu og mér var boðið að taka þátt í Hringadróttinssögu, og það var boðið upp á 250.000 dollara fyrir eitt og hálft ár,“ sagði hann.

„Og ég hugsaði með mér: „Bíðið nú við, penninn minn skrifaði undir þennan samning, sem skuldbatt mig til að greiða 250.000 dollara á ári, og ég ætla að skrifa undir þennan samning, sem gerir það að verkum að ég get alls ekki uppfyllt fyrri samninginn.““ 

Astin sagðist hafa fengið greiddar „75.000 dollara fyrir hverja kvikmynd án þess að fá hlut af framtíðartekjum (e. residue)“.

Hringadróttinssaga kom út sem þrjár myndir á árunum 2001-2003.

Síðar í Jim & Sam Show , sagði Astin að hann hefði verið „í betri fjárhagsstöðu“ þegar þriðja myndin kom út. „Við vorum sammála um að tala ekki um þetta, en þegar kom að því að auglýsa þriðju myndina leið mér aðeins betur, er það góð leið til að komast hjá því að svara?“ spurði hann.

Hversu mikið fengu aðrir leikarar í Hringadróttinssögu greitt?

Astin er ekki eini leikarinn sem hefur tjáð sig um það sem hann fékk greitt fyrir kvikmyndirnar. Orlando Bloom , sem var aðeins 22 ára gamall þegar hann fékk samning um hlutverk Legolas, var í viðtali í The Howard Stern Show árið 2019 og sagði þegar hann var spurður hvað hann fékk greitt:

„Ekkert, ekkert, ekkert. Ég fékk ekkert. 175 þúsund dollara fyrir þrjár kvikmyndir,“ sagði hann.

Bloom sagði hins vegar að hann myndi endurtaka „töfratímabilið“ fyrir helminginn af peningunum og sagði Stern að hlutverkið sem kom honum á kortið væri „stærsta gjöf lífs síns“.

Cate Blanchett hefur einnig talað um launin í þætti af Watch What Happens Live with Andy Cohen þar sem hann taldi að hlutverk hennar sem Galadriel hefðu fært henni mestu launin af hennar hlutverkum.

„Ertu að grínast?“ hló hún. „Nei, enginn fékk neitt borgað fyrir að gera þessa mynd.“