Fókus

Manstu eftir William Hung - Þetta er hann að fást við í dag

Mynd
William Hung

Allir sem eru eldri en tvævetur muna eftir William Hung og ógleymanlegri áheyrnarprufu hans í sjónvarpsþáttunum American Idol, þar sem hann vakti gríðarlega athygli og fyrir allt annað en sönghæfileika sína.

22 árum seinna er áheyrnarprufan líklega sú lífsseigasta í þáttunum sem enn eru í sýningunni, en 24. þáttaröðinni lauk nú í maí. Simon Cowell, sem var dómari í þriðju þáttaröðinni árið 2004 þegar Hung steig á svið kallaði frammistöðuna „gróteska“.

Hung hlaut hins vegar heimsfrægð fyrir og heimsótti Ísland í nóvember árið 2005 þar sem hann tróð upp á opnun Idol verslunar í Smáralind og skemmti í Vestmannaeyjum í tengslum við landsleik Íslands og Noregs.

En hvar er Hung í dag? 

Hann er orðinn 43 ára og starfar í  ríkisstjórn Los Angeles, sem gagnagreinandi hjá öldrunar- og fötlunardeild Los Angeles-sýslu, eftir að hafa starfað hjá lögreglunni í Los Angeles-sýslu allt árið 2025. Samkvæmt LinkedIn þróar Hung mælaborð, framkvæmir gagnagreiningar og tryggir að reglufylgni sé í verkefnum sem styðja við yfir 100 þúsund árlega.

Hung er einnig giftur Hannah Du, þriðju eiginkonu sinni. Í viðtali við tímaritið People viðurkenndi hann að slitnað hefði upp úr hjónabandinu við aðra eiginkonuna, Jian Teng vegna spilafíknar sinnar, sem þróaðist þegar hann varð atvinnupókerspilari.

„Allir peningarnir sem ég hefði getað notað til að bæta líf okkar, farnir. Ég skal gefa þér vísbendingu: Það endaði með því að hún bað um skilnað,“ viðurkenndi 43 ára gamla konan.

Hung viðurkenndi að á árunum eftir að hann hlaut frægð í American Idol hafi sjónvarpsframkoma ekki lengur borgað sig.

Í ritgerð fyrir Our Life Logs útskýrði hann: „Með tímanum dofnaði spennan. Þegar færri tækifæri buðust ákvað ég að fara aftur í nám og klára gráðuna mína. Eftir það lagði ég fúslega skemmtanahattinn minn á hilluna og setti á mig nýjan: glæpasérfræðingur  hjá lögreglunni í Los Angeles.“

Hann flutti til Los Angeles aðeins ellefu ára gamall, eftir að hafa alist upp í Hong Kong.

Hung var aðeins 21 árs gamall þegar hann fór í áheyrnarprufu fyrir þáttinn, þegar Cowell spurði hann: „Þú getur ekki sungið, þú getur ekki dansað, svo hvað viltu að ég segi?“

Hung svaraði: „Ég gerði mitt besta svo ég sé alls ekki eftir neinu.“

Í áheyrnarprufunni benti Hung á að foreldrar hans væru miklir aðdáendur karaoke en að þau hefðu ekki verið mjög glöð að heyra að hann væri að missa af tímum í skólanum til að prófa sig áfram í hinni frægu hæfileikakeppni.