Kúbverski leikarinn Ojani Noa, fyrrverandi eiginmaður Jennifer Lopez, lenti í dramatískum uppgjöri við Sean „Diddy“ Combs vegna meints ástarsambands hans við söngkonuna.
„Þetta var árið sem hún hætti með honum. Við vorum ennþá vinir og höfðum ákveðið að taka saman aftur,“ sagði Noa í viðtali við US Sun og bætti við að Lopez ætti skilið að vera „fyrirgefið einu sinni“ fyrir fyrri „mistök“ sín.
„Hún hafði reynt að losa sig við Diddy áður og hann hafði hótað henni og fjölskyldu hennar,“ fullyrti Noa.
„Combs mætti í afmælisveislu aðstoðarkonu Jennfer í Los Angeles, sem Jennifer hafði haldið fyrir hana, og allir voru í áfalli. Ég fór til hans og sagði honum að fara en hann sagði mér að bakka. Hann spurði mig hver ég væri og ég svaraði: „Drullaðu þér.“ Ég sagði honum að hann hefði sofið hjá konunni minni.“
Noa segir að Lopez hafi gengið á milli þeirra og sagt Noa að Combs myndi yfirgefa partýið, en hann gerði það ekki. „Ég varð reiður við hana og í lok kvöldsins settist hún upp í bílinn hans og fór,“ sagði Noa.
Nokkrum vikum síðar sagði Noa að „brotin“ Lopez hefði hringt í hann þegar Combs mætti á heimili hennar í Los Angeles og byrjaði að öskra nafnið hennar. „Hún sagðist vera hrædd og skelkuð, svo ég fór strax úr vinnunni og fór til hennar. Þegar ég kom þangað var svartamyrkur og ég sá engan, svo hann hlýtur að hafa verið að fela sig. Þegar ég ók inn fór hann að öskra og segja henni að hann vissi að ég væri inni,“ hélt hann fram. „Þá gekk ég á hann. Jennifer var á svölunum og sagði mér að gera það ekki, því hún væri áhyggjufull. Hún sagði mér að hann væri með byssur en ég sagði honum að ég myndi lúskra á honum,“ sagði Noa. „Hún sagðist ætla að hringja í lögguna en nágranni hlýtur að hafa hringt í hana því löggan mætti og Diddy hljóp í burtu.“
Noa hélt því fram að Lopez hefði sagt honum að Combs „gæti gert slæma hluti“ en Noa sagði að hann hefði sagt Combs hreint út að hann væri „skræfa“.
„Þess vegna var hann alltaf með lífvörðum með byssur því hver sem er gat ráðist á hann einn á móti einum,“ hélt Noa fram.
Noa sagði að hann og Lopez hefðu verið „frábær“ og „svo ástfangin“ þangað til Combs kom til sögunnar.
„Ég hafði umsjón með því að opna næturklúbb í Los Angeles sem hét The Conga Room, sem var að hluta til í eigu Lopez, á meðan hún fór að gera sína fyrstu plötu, On The 6, í New York og Miami,“ segir hann í viðtalinu. „Þá var Diddy fenginn til að aðstoða við framleiðslu nokkurra laga.“
Noa segir að Lopez og Combs „hefðu þekkst áður en fjölmiðlar greindu frá því.“
„Hún byrjaði að hanga meira og meira með Diddy og ég fór að sjá hana minna og minna,“ hélt hann fram. „Svo byrjuðu sögusagnirnar. Ég átti ennþá marga vini sem unnu á hótelum í Miami sem hringdu og sögðust hafa séð þau hanga saman og fara síðan.“
Lopez átti að hafa sagt Noa, þáverandi eiginmanni sínum, að samband hennar við Combs væri „bara vinna“, þar til mynd af henni sitjandi í kjöltu Combs birtist.
„Við byrjuðum að rífast mjög illa því ég vissi að hún var að halda framhjá mér,“ hélt hann áfram.
Noa er fyrsti eiginmaður Lopez af fjórum, en þau voru gift frá 1997 til 1998 og hann hefur áður kennt Combs um skilnað þeirra. Lopez opinberaði ástarsamband sitt við Combs í september 1999 og þau voru formlega saman á MTV tónlistarverðlaunahátíðinni, sem fór fram 9. september 1999.
Síðar sama ár var Combs viðriðinn skotárás á næturklúbbi í New York. Lopez var ein af mörgum sem handteknir voru eftir að lögreglan fann stolna og hlaðna 9 mm hálfsjálfvirka byssu í bílnum sem hún og Combs flúðu í. Combs var haldið í fangaklefa í meira en 12 klukkustundir en aldrei var ákærður.
Combs og Lopez slitu sambandi sínu árið 2001.
Combs afplánar nú 50 mánaða fangelsisdóm eftir að hafa verið sakfelldur í tveimur ákæruliðum af fimm, fyrir að flytja fólk til vændiskaupenda. Hann var sýknaður af ákæru um að skipuleggja glæpastarfsemi og kynlífsmansal.
Lopez var gift dansaranum Cris Judd frá 2001 til 2003, söngvaranum Marc Anthony frá 2004 til 2014, og leikaranum og leikstjóranum Ben Affleck frá 2022 til 2025. Lopez og Anthony, eiga saman 18 ára gömlu tvíburana Emme og Max.