Fókus

Vopnfirðingar vitjuðu minninganna á einstakri ljósmyndasýningu

Mynd
Ljósmyndararnir Rúnar Hreinsson (f.v.) og Þengill Oddsson

Það ríkti alveg sérstök stemning, hlaðin gleði og ljúfum minningum, þegar Vopnfirðingar fjölmenntu á ljósmyndasýninguna „Þorpið“ sem var haldin var í tengslum við hið árlega „Vopnaskak“ dagana 9. til 12. júlí, í safnaðarheimili Vopnafjarðarkirkju.

Sýningin skartaði ljósmyndum frá Vopnafirði frá tímabilinu 1970 til 1985. Má svo sannarlega segja að Vopnfirðingar hafi gengið þar inn í fortíð sína og gamlar minningar urðu ljóslifandi. 

Myndirnar voru valdar úr miklu safni þeirra Rúnars Hreinssonar og Þengils Oddssonar. Sýningin er fjársjóður heimilda um mannlíf og lífshætti á Vopnafirði á þessum tíma og var auðheyrt á gestum að myndirnar hreyfðu við þeim, vöktu minningar, jafnvel söknuð og ýttu undir samtöl um liðna tíð og fólkið sem setti svip á bæinn.

Mynd

Þeir félagar, Rúnar og Þengill, hafa stundað ljósmyndun frá unga aldri og eiga þúsundir mynda frá þessum tíma. Að velja úr safninu var ekki auðvelt. Þengill, sem starfaði sem læknir á Vopnafirði í nærri áratug, segir: „Við áttum í svolitlum vandræðum með að halda tölu myndanna í skefjum, enduðum í 120 myndum. Þegar upp er staðið má segja að við höfum lagt áherslu á að velja myndir sem segja ákveðna sögu, bæði einstaklinga og samfélagsins.“

Mynd

Þengill bendir á mynd sem sýnir fé rekið í gegnum bæinn til slátrunar: „Þetta er sennilega elsta myndin á sýningunni, ég tók hana framan við læknishúsið þegar ég leysti af í héraðinu í september 1970, þá 26 ára og rétt skriðinn úr skóla. Þetta voru aðrir tímar og myndin lýsir því ágætlega.“

Mynd

Teknar til bæna. Mynd: Þengill Oddsson

Rúnar Hreinsson var byrjaður að taka ljósmyndir fyrir fréttablöð snemma á unglingsárum. Hann bendir á að margar myndanna á sýningunni hafi verið teknar í tengslum við fréttir af aflabrögðum, t.d. myndin af Sveini Sigurðssyni í Ási sem birtist í dagblaðinu Degi á Akureyri árið 1980. „Þarna var verið að byrja að salta aftur síld á Vopnafirði en það hafði ekki verið gert síðan 1967. Þessi sama mynd birtist svo í Austra árið 1983 þegar fjallað var um síldveiðar á Austfjörðum. Og við höfnina hitti maður líka marga skemmtilega karaktera eins og Albert Ólafsson, sem var mikið ljúfmenni og hraustur; einhver sagði mér að hann hefði aldrei notað hanska við veiðar heldur alltaf verið berhentur.“

Mynd

Albert Ólafsson. Mynd: Rúnar Hreinsson

Þessar myndir eru gluggi inn í horfna lífshætti, mannlíf og samfélag á Vopnafirði, og sýningin var heimamönnum afskaplega kærkomin. Vinir og kynslóðir komu saman, styrktu böndin og brúuðu kynslóðabil. 

Mynd

Þengill og dóttir hans, Eva Þengilsdóttir, sem var sýningarstjóri

Um 400 manns sóttu sýninguna og komur voru alls um 600. Mikið fjölmenni var við opnunina, þann 9. júlí, en Vopnfirðingar fjölmenntu líka á sögustundina daginn eftir, „Sögur úr þorpinu – opinn hljóðnemi.“ Sögðu gestir þar sögur úr þorpinu sem rímuðu afskaplega vel við myndefnið.

 

Mynd

 

Mynd