Fókus

Við þekkjum hana sem Oprah en það er ekki hennar rétta nafn

Mynd
Oprah Winfrey.

Fyrrum spjallþáttadrottningin með miklu meira Oprah Winfrey hefur verið þekkt nafn í áratugi, en gælunafnið sem við þekkjum hana undir er ekki raunverulegt fæðingarnafn hennar.

Winfrey (72) settist nýlega niður með Keke Palmer í hlaðvarpsþætti hennar, Baby, This Is Keke Palmer, þar sem þær spjölluðu um daginn og veginn í  þættinum, sem er 78 mínútna langur.

Eitt af því sem þær ræddu var nafn Winfrey og hún segir sjálf frá að hún hafi ekki vitað hvaða nafni hún var skírð fyrr en hún var „tvítug eða eitthvað“.

„Ég komst að því að nafnið þitt var upphaflega Orpah,“ sagði Palmer. Winfrey staðfesti að svo væri og sagði að það kæmi úr Biblíunni. Aðspurð um af hverju hún hefði breytt nafni sínu útskýrði Winfrey að það hefði ekki verið hennar ákvörðun.

„Það var ekki nafnið sem gerði mig að því sem ég er,“ sagði Winfrey , „ég var krakki og enginn vissi hvernig á að stafsetja það. Það kom í ljós að á fæðingarvottorðinu stóð Orpah og þá fór fólk að kalla mig Oprah. Þannig að það er bara munur á því hvort P-ið kemur á undan R-inu eða eftir R-ið.“

„Þegar þau byrjuðu með Oprah, þá var þetta bara slegið,“ bætti hún við. „Ég lærði ekki fyrr en ég var líklega tvítug eða eitthvað að: „Ó, þetta er ekki alveg nafnið mitt.““

Í viðtalinu sagði Winfrey einnig frá því sem hún telur hafa verið gríðarleg mistök á áralöngum ferli sínum: þemalagið í The Oprah Winfrey Show sem ber titilinn Run On sem hún tók upp sjálf árið 1998.

„Þetta er eitt af mistökum ferils míns,“ sagði hún um lagið sem var aðeins þemalag þáttarins hennar í stuttan tíma.

„Ég var að reyna að ákveða, ætlaði ég að enda sýninguna eða ekki? Og svo átti ég stutt samtal við Jesú og Jesús sagði: „Þú verður að halda áfram.“ Og svo sagði ég, þú veist, það er þetta lag. Það er gamalt andlegt lag.“

Eftir að hafa samið sína eigin útgáfu af laginu áttaði Winfrey sig á því að hún „gæti ekki sungið“, þrátt fyrir að hún hefði tekið kennslustundir áður en hún tók upp lagið.

Palmer reyndi að fullvissa Winfrey um að lagið hennar væri „ekki svo slæmt“ en Winfrey var ekki að taka undir það.

„Þú veist að þetta var slæmt. Þú segir þetta bara af því að þú ert að horfa á mig. Þetta var frekar slæmt.“

Lagið Run On var aðeins notaðir í einni þáttaröð af vinsæla spjallþættinum hjá Winfrey, sem var sýndur frá 1986 til 2011. Spjallþættinum lauk eftir 25 þáttaraðir svo að Winfrey, sem nú á um það bil 3,4 milljarða dollara nettóeignir, gæti stofnað sína eigin kapalrás sem hét Oprah Winfrey Network (OWN).