Bandaríski leikarinn Johnny Depp (63) kom aðdáendum á óvart með því að mæta á San Diego Comic-Con á fimmtudaginn, klæddur sem Ebenezer Scrooge.
Depp mætti til leiks klæddur í þykkan frakka og pípuhatt ásamt göngustaf sem aldraði nirfilinn úr klassískri sögu Charles Dickens, A Christmas Carol. Andlitsgervi og grátt hár og bartar fullkomnuðu gervið. Gægðist hann um frostþakinn glugga og kom út úr snæviþöktum dyrum.
Depp var kampakátur og sat fyrir með aðdáendnum sem margar voru klæddist sem nokkrar af hans þekktustu persónum úr fyrri kvikmyndum, þar á meðal Willy Wonka úr Charlie and the Chocolate Factory (2005), Edward Scissorhands úr kvikmyndinni frá 1990 og Captain Jack Sparrow úr Pirates of the Caribbean myndunum (2003-2017).
Annars staðar á ráðstefnunni steig Depp á svið sem Ebenezer, með kertaljós sem brunnið hafði niður í stuttan stubb.
Stiklan fyrir myndina í leikstjórn Ti West kom einnig á netið í gær, fimmtudag. Myndin er áætluð í sýningu 13. nóvember og með önnur aðalhlutverk fara Andreu Riseborough, Ian McKellen, Daisy Ridley, Sam Claflin og Rupert Grint.
Hlutverkið er það fyrsta hjá Depp í Hollywood eftir að hann vann meiðyrðamál gegn fyrrverandi eiginkonu sinni, Amber Heard, árið 2022. Hann stefndi Heard og krafðist 50 milljóna dala í skaðabætur og hélt því fram að hún hefði rægt hann um ofbeldi í skoðanagrein í Washington Post árið 2018. Að lokum var Heard gert að greiða Depp 15 milljónir dollara í skaðabætur, þó hún fengi einnig 2 milljónir dollara í gagnkröfu. Þau náðu samkomulagi í málinu það ár og Heard samþykkti að greiða Depp eina milljón dollara.