Rokkstjarnan Jon Bon Jovi þurfti óvænt að stöðva tónleika í Madison Square Garden í New York í gærkvöldi. Aðdáendur hafa áhyggjur af heilsu hans.
„Ég verð að róa þetta niður, ég verð að róa þetta niður, þetta verður bara ekki betra, allt í lagi?“ sagði Bon Jovi óvænt á tónleikunum eftir að hafa flutt slagarann „Living on a Prayer“. „Ég hef ekki talað við neinn um neitt en ekki henda miðunum ykkar. Ég ætla að finna út úr þessu, allt í lagi? Haldið þeim bara. Við finnum út hvernig við getum endurskipulagt en ég verð að róa þetta niður núna.“
Sagði söngvarinn aðdáendum sínum að hann væri að kljást við skútabólgu (sinus-sýkingu) í öndunarfærum og þyrfti að stoppa.
Bon Jovi, sem er 64 ára, hefur túrað mjög stopult undanfarin ár vegna heilsufarsvandamála. Hann hefur átt í vanda með raddböndin og þurfti meðal annars að gangast undir skurðaðgerð til að byggja þau aftur upp.
Óttaslegnir um framhaldið
Það var aðdáendum hughreysting þegar Bon Jovi tilkynnti um tónleikaröð í Madison Square Garden í New York í sumar og hafa miðarnir selst eins og heitar lummur. Tónleikarnir í gær voru þeir áttundu í röðinni en aðdáendur eru nú óttaslegnir um framhaldið.
Bon Jovi var rúmlega hálfnaður með tónleikana en átti eftir að flytja flest þekktustu lögin, sem mörg hver eru flutt í uppklappinu. Tónleikagestir voru því vitanlega vonsviknir.
„Hann var miður sín. Ég vorkenndi honum,“ sagði einn aðdáandi á samfélagsmiðlum.
„Vonandi verður allt í lagi með hann,“ sagði annar.
Frekari upplýsingar um tónleikaröðina verða veittar síðar en næstu tónleikar eru fyrirhugaðir á sunnudag. Eftir það á hann að halda til London, Edinborgar og Dyflinnar.