Fjölmargir ferðamenn nota vefinn Tripadvisor á ferðalögum sínum til að finna meðmæli með veitingastöðum, stöðum sem vert er að skoða og upplifunum, í þeirri borg eða landi sem þeir eru staddir hverju sinni. Miðað við veðrið á höfuðborgarsvæðinu eru margir að njóta sín í betra veðri á landsbyggðinni.
Á Tripadvisor geta notendur gefið einkunnir og umsagnir og þannig raðast veitingastaðir og staðir upp í röð eftir einkunnunum. Það getur því skipt veitingastaði töluverðu máli að vera ofarlega á listanum og slæmar umsagnir, þó þær séu fáar, geta lækkað einkunnina verulega. Síðustu helgi birti DV nýjan lista yfir tíu bestu veitingastaðina á landinu samkvæmt Tripadvisor en þeir voru allir staðsettir í Reykjavík. Það er langt því frá að það þurfi að vera í höfuðborginni til að komast á framúrskarandi veitingastað - þá er að finna hringinn í kringum landið eins og sjá má á listanum hér fyrir neðan.
Bara Bistro, Borgarnesi
Bara Bistro á Brákarbraut í Borgarnesi býður upp á ýmsa valkosti í mat og drykk, nær staðurinn helium fimm í einkunn af rúmlega hundrað umsögnum. Náði staðurinn meira að segja að fá Travellers Choice merki frá Tripadvisor í fyrra.
Á matseðlinum má meðal annars finna folaldasteik, grillaða lambasteik og grillað kínakál.
Notandi frá Miami í Bandaríkjunum sem heimsótti staðinn fyrr í júlí segir: „Mjög góðar skammtastærðir miðað við kostnaðinn við að vera á Íslandi – Maturinn var góður, starfsfólkið framúrskarandi – vinalegt og hjálpsamt. Gott andrúmsloft.“
Natalie sem heimsótti staðinn í júní var ánægð með grænmetisréttinn: „Þetta var gómsætasti réttur fyrir grænmetisætur sem ég hef fengið á Íslandi. Ég hef aldrei fengið svona, ætla að prófa að gera svona heima,“ segir hún. „Fimm stjörnur alla leið.“
Tjöruhúsið, Ísafirði
Þessi veitingastaður er áhugaverður að því leyti að hann er ekki með eiginlegan matseðil heldur er eldað það sem kemur úr hafinu á hverjum tíma, endurspeglast þetta viðhorf á vefsíðunni þeirra sem er í einfaldari kantinum. Staðurinn er lokaður megnið af vetri og er aðeins opinn í hádeginum og á kvöldin á sumrin.
Þórunn, sem fór þangað í júlí, segir: „Maturinn var frábær og þjónustan líka.“
Robert frá Flórída kom þangað fyrr í júlí, tekur í sama streng: „Ekki missa af þessum stað ef þú elskar fisk. Úrvalið af fisk var frábært og rosalega gott. Starfsfólkið og eigendurnir voru skemmtileg og vingjarnleg. Ef þú ert á svæðinu, ekki sleppa því að fara þangað.“
Eyja Vínstofa & Bistro, Akureyri
Segja má að Vínstofan sé næst best staðsetti veitingastaðurinn á Akureyri, á eftir Bautanum, er staðurinn steinsnar frá á Hafnarstrætinu. Þar má finna öflugan vínlista og einfaldan matseðil, er fólki beint á að fara í þriggja rétta seðil með nautalund eða þorski. Staðurinn skorar 4,8 af 76 umsögnum.
Stephanie sem heimsótti staðinn í júlí var hæstánægð: „Við fengum okkur túnfisksahimi sem var mjög gott með kryddi, stökkum bitum, jurtum og granateplum. Við fengum okkur svo þorskinn sem var alsæla, svo vel fram settur og bragðgóður. Kokteilarnir voru góðir og maðurinn minn uppgötvaði nýtt franskt hvítvín, Jajatoes, sem hann naut.“
Strikið, Akureyri
Strikið skorar hæst á Akureyri með tilliti til útsýnis en á efstu hæðinni í Skipagötunni er fallegt útsýni yfir Eyjafjörðinn með menningarhúsið Hof í forgrunni. Í sumrin er hægt að borða úti á svölum, ef það er gott veður á Akureyri. Strikið skorar 4,3 af tæplega þúsund umsögnum.
Thom frá Þýskalandi sem kom í júní var hæstánægður: „Topp veitingastaður, mæli með! Góður kokkur, góð þjónusta og langur vínlisti.“
Janni frá Belgíu fannst maturinn dýr þó hann gæfi nú þrjár stjörnur. „Ungt starfsfólk og fljót þjónusta. Maturinn og vínið í meðallagi. Klósettin ógeðsleg.“
Eldhúsið, Egilsstöðum
Veitingastaðurinn Eldhúsið er staðsettur á Gistihúsinu á Egilsstöðum. Hægt er að fá góða nautasteik, fisk eða hamborgara af fínni gerðinni, einnig djúpsteikt humarsushi. Eldhúsið skorar 4,4 af rúmlega 300 umsögnum.
Isabel sem var þar í maí var rétt búin að klára forréttinn þegar hún gaf staðnum fimm stjörnur: „Ég er ekki einu sinni búin að fá aðalréttinn en drykkirnir og forréttirnir eru framúrskarandi. Kem hingað aftur ef ég heimsæki aftur Ísland.“
Pakkhúsið, Höfn
Pakkhúsið er staðsett á höfninni á Höfn. Eins og gefur að skilja er humar í forgrunni á matseðlinum, fer þetta að minna á rækjuupptalninguna í Forrest Gump; Það er hægt að fá ameríska humarhala, heilan humar, humar í rjómasósu, humarsúpu…þá er það reyndar upptalið. Það eru að sjálfsögðu aðrir spennandi réttir á borð við önd, túnfiskssteik og hrossalund. Pakkhúsið er að skora 4,7 af rúmlega 2.600 umsögnum sem verður að teljast framúrskarandi.
Jo frá New Hampshire í Bandaríkjunum fór þangað núna í júlí, hún segir: „Góður matur, frábær þjónusta, falleg staðsetning. Ég fékk mér túnfisk og lamb. Góðar skammtastærðir. Áhugavert brögð.“
Kalli frá Þýskalandi kom þangað með konunni sinni: „Fengum okkur kolkrabbann í forrétt, fisk og túnfiskinn í aðalrétt. Flottir réttir og enn betri á bragðið,“ segir Kalli. „Klikkar ekki.“
Gott, Vestmannaeyjum
Gott er áhugaverður fjölskylduveitingastaður á Bárustíg í Vestmannaeyjum. Allt pasta, sósur og meira að segja ísinn er búinn til á staðnum. Á matseðlinum má finna eldbakaðar pizzur, áhugaverða rétti á borð við vegan pastrami og tagliatelle með kjúklingabringu, fyrir utan fisk dagsins. Gott er að skora 4,8 af tæplega 800 umsögnum og fékk viðurkenninguna Travellers Choice í fyrra.
Mike frá Kaliforníu fór þangað í júní með konunni sinni: „Við vorum í skoðunarferð með Lindu leikskólakennara. Hún mælti með því að fara á Gott því það þýði gott. Þetta er meira en gott. Konan mín fékk sjávarréttasúpuna sem var bæði vel borin fram, súpan kom til borðsins eins og salat í skál og svo var soðinu hellt yfir.“
Næs, Vestmannaeyjum
Það mætti halda að fjölskylduveitingastaðir í Vestmannaeyjum séu skyldaðir að vera með þriggja stafa nafn en þetta er líklega tilviljun. Á Strandgötunni er að finna Næs þar sem boðið er upp á ýmsa spennandi rétti, þar á meðal „Fiski krúdó stundarinnar“, þorskvængi með reyktri súrmjólk og lambasíðu með rabbabara barbequesósu. Næs fer upp í 4,9 í einkunn en þó af aðeins 59 umsögnum.
Tom frá Texas fór þangað í júní: „Þetta var hluti af Víkingaferð sem var frekar dýr, við fórum í gönguferð og svo að smakka kryddjurtir með kokkinum. Þarna má finna mat sem er búinn til úr hráefni úr nærumhverfinu, þar á meðal kryddjurtirnar.“
Notandi sem kom í ágúst í fyrra segir: „Þjónusta starfsfólks var mjög góð og þau voru einstaklega lausnamiðuð. Maturinn sem við fengum var frábær. Mælum með NÆS!“
Fröken Selfoss, Selfossi
Fyrir þá sem vilja fara skrefi ofar við mathöllina á Selfossi þá er hægt að kíkja á Fröken Selfoss sem er staðsett á torginu fyrir aftan. Líkt og fleiri veitingastaðir sem skora hátt þá er passað upp á að fá hráefnin úr íslenskri náttúru, Frökenin gefur sig meira að segja út fyrir að hafa tónlistina íslenska. Á matseðlinum má finna þorsk, lamb og folaldalund, einnig er boðið upp á samsetta matseðla. Fröken Selfoss er að skora 4,9 í einkunn af um 300 umsögnum, náði staðurinn að fá Travellers Choice viðurkenningu í fyrra.
Erica frá Washingtonborg, var mjög sátt þegar hún kom í maí: „Þessi staður er falinn demantur! Gæti ekki verið ánægðari að stoppa hér á leiðinni til Reykjavíkur,“ segir hún. „Ein besta máltíð ferðarinnar, tekur því alveg að leita hann uppi.“
Ráin, Reykjanesbæ
Ráin hefur staðið fyrir sínu frá 1989 með sínu glæsilega útsýni yfir Faxaflóann. Boðið er upp á bröns í hádeginu og svo á kvöldin er klassískur matseðill með allt frá plokkfiski til svínarifja. Ráin nær að skora 4 í einkunn af tæplega 400 umsögnum.
Ashley sem fór þangað í september í fyrra með maka sínum var ánægð með matinn. „Mér leið eins og ég væri á veitingastað frá níunda áratugnum, fékk alveg nostalgíu. Allt mjög hreint samt. Verðið var allt í lagi miðað við skammtastærðina. Bjórinn var líka ekki of dýr.“
Tanja sagði svipað í sinni umsögn. „Stemningin og útlitið er beint frá níunda áratugnum sem er frekar flott. Ég fór bara aftur í tímann. Maturinn og þjónustan var í meðallagi.“