Fókus

Svona reddaði Jógvan geðheilsunni í rigningarsumrinu

Mynd
Jógvan Hansen.

Færeyingurinn geðþekki Jógvan Hansen segir Gufuá í Borgarfirði hafa reddað geðheilsu sinni í rigningu síðustu daga, en þangað skrapp hann til veiða með vini sínum.

„Já þetta var skyndiákvörðun hjá okkur Sigurjóni og við hentumst upp í Borgarfjörð í Gufuá,” sagði Jógvan Hansen í samtali við veiðivefinn Veiðar.is sem Gunnar Bender rekur.

Segist Jógvan hafa verið búinn að  fá nóg af endalausri rigningu í bænum.

„Árnar voru vatnsmiklar á leiðinni sem er skiljanlegt og litaðar, en Gufuáin var allt í lagi, smá litur á henni. Ég náði strax lax eftir við komum uppeftir og svo fengum við annan lax. Það höfðu veiðst laxar í henni í dag og síðustu daga. Þetta var frábær ákvörðun að skreppa aðeins og veiða eftir alla þessa rigningu, reddaði geðheilsunni alveg,” sagði Jógvan enn fremur, með lax í skottinu sem  átti að vera í matinn á næstu dögum.

Mynd
Jógvan með flottan lax úr Gufuá í Borgarfirði í gærkvöldi.