Það efast fáir um mikilvægi svefns og er almennt talið að fullorðið fólk þurfi að sofa í 7-9 klukkustundir á hverjum sólarhring. En það eru ekki allir sem ná þessum tölum.
Forsætisráðherra Japans, Sanae Takaichi, hefur vakið mikla athygli eftir að hún greindi frá því að hún hafi frá embættistöku yfirleitt aðeins sofið á bilinu núll til þrjár klukkustundir á nóttu.
Ummælin hafa hrundið af stað víðtækri umræðu um vinnumenningu í Japan og hvort leiðtogi landsins geti sinnt starfi sínu af fullri getu við slíkar aðstæður.
Takaichi, sem hét því að „vinna, vinna, vinna, vinna og vinna“ þegar hún tók við embætti í fyrrahaust, greindi frá því í færslu á samfélagsmiðlinum X hvernig hún hefði varið opinberum frídegi í Japan síðastliðinn mánudag, þegar margir Japanir nutu frídags við ströndina.
Lýsti Takaichi því að hún hefði setið heima hjá sér við lestur skjala, svarað fleiri hundruð tölvupóstum, straujað nærföt og saumað fasta lausa hnappa á fötunum sínum.
Þá sagði hún að henni hefði loksins tekist að sofa í „heilar fimm klukkustundir í fyrsta skipti í langan tíma“ og bætti við að frá því hún varð forsætisráðherra hefði svefninn yfirleitt verið á bilinu núll til þrjár klukkustundir á sólarhring.
Samkvæmt The New York Times hefur færslan verið skoðuð um 35 milljón sinnum og kveikt umræðu um hvort langvarandi svefnskortur geti haft áhrif á getu forsætisráðherra til að gegna embætti sínu.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa gagnrýnt ummælin harðlega. Einn þeirra líkti miklum svefnskorti við ölvun og hvatti Takaichi til að segja af sér. Annar sagði, samkvæmt japanska dagblaðinu Mainichi, að það væri einnig hlutverk leiðtoga að skipuleggja verkefni þannig að hann gæti einbeitt sér að þeim störfum sem aðeins æðsti stjórnandi gæti sinnt.
Stuðningsmenn forsætisráðherrans hafa hins vegar komið henni til varnar og segja að hún sé einfaldlega að sýna hversu erfitt sé að samræma krefjandi leiðtogahlutverk og heimilisstörf.