Beiðni Meghan Markle á tökustað og misskilningur mun hafa pirrað Poh Ling Yeow, dómara í MasterChef Australia. Samkvæmt SkyNews kynnti dómarinn hertogaynjuna af Sussex óvart sem „konungsfólk“ (e.royalty) í gestaheimsókn Markle, þrátt fyrir að Markle og teymi hennar hefðu fyrirskipað framleiðendum að nota ekki það orð.
„Við höfum haft MasterChef konungsfjölskylduna í eldhúsinu áður en engan eins og þennan,“ sagði Yeow í kynningarmyndbandi fyrir þáttinn. „Alla leið frá sólríku Kaliforníu, vinsamlegast bjóðið velkomna til MasterChef Ástralíu, hertogaynjuna af Sussex, Meghan Markle!“
Markle mun hafa pirrast mjög yfir kynningu Yeow, sem að sama skapi var pirruð og leið vegna þess.
„Þetta snerist ekki um Meghan persónulega,“ fullyrðir heimildarmaður SkyNews. „Poh fannst hún óviljandi hafa verið dregin inn í mál sem varða konunglegar siðareglur og hún ætlaði sér aldrei að taka þátt í.“
Mun Yeow hafa viljað biðja Markle persónulega afsökunar en hafi verið ráðið frá því. „Hún var tilbúin að hafa samband strax. En henni var ráðlagt að láta framleiðsluna sjá um þetta.“
Á sama tíma fullyrti annar heimildarmaður að einhverjar tökur í þættinum verði ekki sýndar vegna persónuleikamunar Yeow og Markle.
„Poh er full af orku, hún er alltaf að grínast og lyfta stemningunni. Hún reyndi að kveikja sama neistann hjá Meghan, með því að segja nokkrar skemmtilegar línur, en það náði ekki öllu eins og til stóð,“ hélt heimildarmaðurinn fram.
Hermt er að þrátt fyrir allt þetta hafi Markle og Poh „hafi átt frábæran tíma saman á setti“. „Meghan var ekki pirruð yfir neinu sem sagt var á setti.“
Þátturinn var tekinn upp þegar Markle og Harry prins voru í heimsókn í Ástralíu fyrr á þessu ári, þar sem þau komu víða við og héldu meðal annars ræður og góðgerðarviðburði.
Þáttur Markle af MasterChef Australia verður sýndur á sunnudaginn á Network 10 og 10 Play í Ástralíu.