Fókus

Íslandsvinurinn opnar sig um raunverulega ástæðu þess að Simpson fjölskyldan er gul

Mynd
Skjáskot/Instagram

Teiknimyndaframleiðandinn og Íslandsvinurinn Mike Reiss segir að það hafi tekið sig mörg ár að komast að því hvers vegna Simpson-fjölskyldan væri í raun með gulan húðlit. Reiss var handritshöfundur og síðar framleiðandi þáttanna sívinsælu á tíunda áratugnum, það sem er iðulega talið vera gullaldartímabil þáttanna. 

Reiss er að mestu hættur störfum í dag og ferðast um heiminn, þar á meðal til Íslands, en hann ætlar nú að vera með fyrirlestraröð í Bretlandi þar sem hann fer yfir ýmsa atburði að tjaldabaki við gerð Simpsons. Í viðtali við Independent um ferðina ræddi hann meðal annars um gula húðlit íbúa Springfield. Hefur hann reglulega verið útskýrður sem að gulur lokki að fólk sem sé að fletta á milli sjónvarpsstöðva.

Það er þó ekki raunin að sögn Reiss. „Fyrir löngu síðan spurði sex ára strákur mig hvers vegna þau eru gul. Ég hafði aldrei pælt í því. Ég spurði alla handritshöfundana, teiknara og framleiðendurna og enginn vissi það almennilega. Ekki einu sinni skaparinn Matt Groening sem sagði mér að hann hefði ekki valið þennan lit,“ segir Reiss.

Tók það nokkur ár að komast til botns í málinu. „Ég fann ungversku konuna sem vann í litadeildinni í teiknistúdíóinu sem hafði tekið þá einhliða ákvörðun að gera alla í Simpsons gula,“ segir hann.

Mynd
Lisa, Bart og Maggie Simpson.

„Þetta var mjög áhugavert val verð ég að segja. Ástæðan var mjög einföld, Bart, Lísa og Maggie eru ekki með neina línu sem afmarkar hárið þeirra. Það er ekkert á milli húðarinnar og hársins, þannig að henni fannst hún þurfa lit sem gengi fyrir bæði, gult getur virkað sem litur fyrir hár og sem litur fyrir húð. Þannig var nú það.“