Elon Musk, eigandi Tesla, SpaceX og fleiri fyrirtækja, segist ætla að láta gervigreindarforrit sitt Grok búa til kvikmynd í fullri lengd byggða á Ódysseifskviðu Hómers áður en árið er liðið. Að hans sögn verður myndin „sögulega rétt“ og trú upprunalegu verki Hómers.
Yfirlýsingin kemur í kjölfar harðrar gagnrýni Musks á stórmynd Christophers Nolans, The Odyssey, sem hefur notið gríðarlegra vinsælda.
Myndin, sem byggð er á hinu forngríska söguljóði Hómers, fylgir hetjunni Ódysseifi á ferðalagi hans heim eftir Trójustríðið og er fyrsta kvikmynd sögunnar sem tekin er alfarið upp í IMAX-formi. Sýningar í því formi hafa verið uppseldar vikum saman.
Þrátt fyrir velgengni myndarinnar hefur Musk ítrekað gagnrýnt bæði efni hennar og leikaraval. Hann hefur haldið því fram að myndin sé of „woke“ og „and-hvít“ og sagðist því ætla að búa til eigin útgáfu með aðstoð gervigreindar.
„Áður en þessu ári lýkur mun Grok Imagine búa til kvikmynd í fullri lengd af Ódysseifskviðu sem verður sögulega rétt og trú verk Hómers,“ skrifaði Musk á samfélagsmiðlinum X.
Í sömu færslu vísaði hann á þriggja mínútna myndskeið sem notandi sagði hafa verið búið til með Grok Imagine. Þar má sjá atriði þar sem Ódysseifur hittir gyðjuna Kalýpsó.
Musk vakti einnig mikla athygli í mars þegar hann sakaði Nolan um kynþáttafordóma gegn hvítu fólki vegna þess að Óskarsverðlaunaleikkonan Lupita Nyong'o var ráðin í hlutverk Helenu frá Tróju.
Hann sagði að Nolan hefði glatað heilindum sínum og kallaði valið á Lupitu móðgun við Hómer. Þá deildi hann einnig færslum sem gerðu lítið úr transleikaranum Elliott Page, sem fer með hlutverk í myndinni.
Ummæli Musks hafa mætt harðri gagnrýni í Hollywood. Leikstjórinn Scott Derrickson, sem meðal annars gerði The Black Phone, sagði á X að Musk hefði ekki hundsvit á kvikmyndum og að skoðanir hans á list væru einskis virði.
Before this year ends, Grok Imagine will make a full-length movie of The Odyssey that is historically accurate and true to the art of Homer https://t.co/bVHzUmY9WN
— Elon Musk (@elonmusk) July 22, 2026