Fókus

„Ég grét í tvo til þrjá tíma“ – útilokar ekki að það gerist aftur eftir Brekkusönginn

Mynd
Ágúst Þór.

„Ég var hágrátandi í svona tvo til þrjá tíma. Fólk gat ekki huggað mig og ég veit eiginlega ekki af hverju ég var að gráta.“ Þannig lýsir tónlistarmaðurinn Ágúst Þór viðbrögðum sínum eftir að Söngvakeppni sjónvarpsins lauk á síðasta ári. Eftir nokkra mánuði þar sem allt snerist um eitt markmið segir hann líkamann einfaldlega hafa sleppt allri spennunni þegar myndavélarnar slokknuðu.

Nú stendur hann frammi fyrir verkefni sem hann segir enn stærra. Eftir örfáa daga stýrir hann sínum fyrsta Brekkusöng á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum og útilokar ekki að sagan endurtaki sig. „Ég veit ekki hvort ég verði grenjandi þegar ég labba niður af sviðinu eftir Brekkusönginn. Það eru svona 50/50 líkur á því,“ segir Ágúst og hlær.

Í hlaðvarpinu Popparasögur segir Ágúst að hann hafi ákveðið snemma árs að hafna nær öllum verkefnum í júlí til að geta helgað sig undirbúningnum fyrir Brekkusönginn. „Það hefði verið mjög auðvelt að segja já við öllum giggunum en ég ákvað mjög snemma að vera bara heima, undirbúa mig og gera þetta eins vel og ég mögulega get,“ segir Ágúst í hlaðvarpinu.

Mynd

Prógrammið tilbúið

Undirbúningurinn fyrir stóra kvöldið hefur verið markviss. Ágúst hefur farið yfir upptökur af Brekkusöngum fyrri ára, hlustað á lagaval og uppbyggingu dagskrárinnar, velt fyrir sér flæði söngsins og síðan sett saman sitt eigið prógramm. „Ég hélt að lagavalið væri meira og minna ákveðið, en ég fékk í raun að byggja upp mitt eigið prógramm.“

Síðustu vikur hafa síðan einkennst af endurtekningum. „Það fyrsta sem ég hugsa um þegar ég vakna er Brekkusöngurinn og það síðasta sem ég hugsa um áður en ég fer að sofa er Brekkusöngurinn,” segir Ágúst sem rennir yfir prógrammið að minnsta kosti einu sinni á dag.

„Ég fer í ræktina, fer í sund og kem svo hingað í stúdíóið og spila prógrammið nokkrum sinnum. Ég er bara heima með gítarinn.“

Framtakssemin skilar sér

Ágúst segir reynsluna úr Söngvakeppninni hafa kennt sér hversu miklu máli slíkur undirbúningur skiptir. Þá hafi hann verið í algjörum fókus mánuðum saman og þegar útsendingunni lauk hafi öll spennan loksins losnað. „Ég var bara búinn að vera í fókus í hálft ár. Svo slökktu þeir á myndavélunum og þá bara kom allt út.“

Hann segir að eitt hafi þó fylgt sér í gegnum allan ferilinn: að bíða ekki eftir því að tækifærin komi heldur skapa þau sjálfur. „Ég bíð ekki við símann. Ég vinn best þegar ég bý mér til verkefnin sjálfur og get stýrt þeim frá A til Ö.“

Hann hefur nýlokið við tónleikaferðalag um landið þar sem hann hélt fría tónleika í 19 sveitarfélögum auk þess að koma fram í leikskólum, skólum og dvalarheimilum. Tónleikaferðina skipulagði hann í kjölfar útkomu fyrstu plötunnar, Hjartað á milljón, sem kom út fyrr á þessu ári.

Í viðtalinu ræðir Ágúst einnig um tímann með Stuðlabandinu, gerð fyrstu plötunnar, samstarfið við Unu Torfa, hvernig Hreimur hvatti hann til dáða og hvers vegna hann telur fagmennsku og undirbúning vera lykilinn að því að ná árangri.