Vinkonurnar Inga Auðbjörg Straumland, fyrrum formaður Siðmenntar, og Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, núverandi formaður Siðmenntar, hafa báðar sett íbúðir sínar á sölu. Inga sína á Barónsstíg í miðbænum og Arndís sína á Rauðalæk í Laugardal.
Fyrirsögnin er tekin úr færslu Ingu á Facebook um fyrirætlun þeirra að kaupa saman draumakommúnu sem þær hafa þegar gert tilboð í. En til þess þurfa þær að selja sínar eignir. Auk þess að vera vinkonur eru þær fyrrum mágkonur, þar sem Inga var gift bróður Arndísar, Helga Hrafni Gunnarssyni.
„Eftir að hafa legið yfir fasteignaauglýsingum í örugglega áratug, gert ýmis tilboð, mælt og pælt, höfum við platónska ofurteymið, ég og Arndís Anna, gert tilboð í draumakommúnuna okkar. En þá þurfum við að selja íbúðirnar okkar; svo ef ykkur dreymir annað hvort um litríka íbúð í miðborginni, eða yndislega hæð í Laugardalnum, endilega skoðið ykkur um á opnu húsunum í næstu viku.“
Íbúð Ingu er fjögurra herbergja 111,1 fm. endaíbúð á 1. hæð ásamt útleiguherbergi í kjallara við Barónsstíg í húsi byggðu árið 1932. Gengið er inn í húsið baka til þar sem stór og skjólgóður garður til suðurs býður upp á notalegt útisvæði fyrir íbúa.
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, borðstofu sem er í dag nýtt sem hjónaherbergi, tvö barnaherbergi og baðherbergi.
Í kjallara er útleiguherbergi, 8,4 fm, með aðgang að sameiginlegu salerni í sameign. Geymsla, þvottahús og þurrkherbergi er í sameign. Geymsluskúr er á lóð. Þar eru þrjár sérgeymslur fyrir húsið, meðal annars geymsla sem tilheyrir íbúðinni (köld) um 8,3 fm. að stærð.
Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.
Íbúð Arndísar er 6-7 herbergja 164,4 fm. hæð með sérinngangi og bílskúr á Rauðalæk í Laugardal ásamt útleiguherbergi í kjallara í húsi byggðu árið 1961. Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð, meðal annars húsið múrviðgert og málað, þak yfirfarið, skólp og dren.
Íbúðin skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu og borðstofu í alrými, fjögur svefnherbergi þar af eitt þeirra inn af forstofunni, úr hjónaherberginu er útgengt út á svalir, og baðherbergi.
Í kjallara er auka herbergi fyrir íbúð og salerni sem fylgir eigninni. Í sameign er jafnframt sameiginlegt þvottahús.
Bílskúrinn er skráður 31,0 fm. að stærð, fullbúinn með heitu og köldu vatni, rafdrifin bílskúrshurð. Bílastæði íbúðar er fyrir framan bílskúr.
Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.