Fókus

Þetta er nýja líkamsræktaræðið sem Hailey Bieber notar til að móta líkamann

Mynd
Hailey Bieber leggur mikla áherslu á að viðhalda góðri heilsu.

Hailey Bieber virðist hafa tekið ástfóstri við nýja æfingarútínu eftir að hafa lýst því yfir að pilates væri ekki lengur svarið. Nýja æfingaaðgerðin er sögð „blekkja“ vöðvana til að vinna meira en undir minna álagi.

Æfingin sem um ræðir kallast BFR (e.  blood flow restriction) og er þjálfunaraðferð þar sem blóðflæði í útlimina er skert. Gengur þetta út á að styrkja og stækka vöðva með minni þyngdum en ella.

Hailey lýsti því yfir fyrr á árinu að pilates væri nokkurs konar tískubóla og erfitt væri að finna kennara sem leggja áherslu á rétta tækni. Hún tók þó fram að hún elskaði pilates og það hafi reynst henni vel í gegnum tíðina.

BFR-böndin

Á dögunum vakti Hailey athygli þegar hún birtist á samfélagsmiðlum með æfingavesti með lóðum og sérstök BFR-bönd á æfingu.

Í frétt New York Post er haft eftir einkaþjálfaranum Paul Comsulea að böndin takmarki að hluta til blóðflæði í vöðvana. Það eykur efnaskiptaálag í vöðvanum og veldur þeirri brunatilfinningu sem margir upplifa við erfiðar æfingar og kalla gjarnan „pump“.

„Takmarkað blóðflæði blekkir vöðvana til að vinna mun meira en þeir myndu annars gera með sama álagi,“ segir Comsulea.

Að hans sögn getur fólk því náð svipuðum árangri og við hefðbundna styrktarþjálfun með 20 til 30 prósent þyngri lóðum, þrátt fyrir að nota mun léttari þyngdir. Hann segir böndin henta best með æfingum sem einangra rassvöðvana, svo sem mjaðmalyftum og sparkæfingum, en síður með þungum hnébeygjum eða öðrum samsettum styrktaræfingum.

Geta nýst mörgum

Í frétt New York Post kemur fram að niðurstöður rannsóknar sem birtar voru árið 2020 í International Journal of Sports Physical Therapy styðji að hluta til þessar fullyrðingar. Þar var átta vikna BFR-þjálfun borin saman við hefðbundna styrktarþjálfun með þungum lóðum.

Niðurstöðurnar sýndu að þátttakendur sem notuðu BFR-bönd bættu bæði styrk og vöðvaþol á svipaðan hátt og þeir sem lyftu þungum lóðum, þrátt fyrir að æfa með mun minni ákefð. Rannsakendur töldu að aðferðin gæti því hentað fólki sem getur ekki eða ætti ekki að lyfta mjög þungum lóðum.

Engin töfralausn

Sérfræðingar leggja þó áherslu á að BFR-bönd komi ekki í stað hefðbundinnar styrktarþjálfunar.

Þeir benda á að áhrifaríkustu æfingarnar til að byggja upp rassvöðva séu enn samsettar hreyfingar á borð við hnébeygjur, réttstöðulyftur og framstig, sem styrkja jafnframt aftari og fremri hluta læranna.

Of mikil áhersla á einangrun rassvöðvanna geti auk þess leitt til vöðvaójafnvægis sem hafi áhrif á stöðu mjaðmagrindarinnar og geti með tímanum valdið verkjum í mjóbaki.

Comsulea segist því aldrei mæla með BFR-böndum fyrir fólk sem er nýbyrjað að æfa.

„Þetta er frekar fyrir fólk sem er komið lengra í þjálfun sinni,“ segir hann.

Þó geti böndin reynst gagnleg í endurhæfingu eftir hné- eða mjaðmaaðgerðir og einnig fyrir eldra fólk sem vill styrkja vöðva án þess að setja mikla byrði á liði og sinar.

Sérfræðingar leggja þó áherslu á að böndin verði að nota rétt og mæla með því að fólk læri tæknina hjá þjálfara eða sjúkraþjálfara. Þá er einnig ráðlagt að ráðfæra sig við lækni áður en BFR-þjálfun er hafin, sérstaklega ef um er að ræða fólk með sögu um blóðtappa, ómeðhöndlaðan háþrýsting eða aðra undirliggjandi sjúkdóma.