Ástralska Hollywood stjarnan Rebel Wilson var sýknuð í meiðyrðamáli sem ung leikkona höfðaði á hendur henni. Wilson var sökuð um að bera út lygasögur um hana á Instagram.
Sjónvarpsstöðin CNN greinir frá þessu.
Dómstóll í Ástralíu hefur sýknað Rebel Wilson af bótakröfum leikkonunnar Charlotte MacInnes vegna meintra meiðyrða. Það er MacInnes hafði sakað Wilson um að bera út lygasögur um hana á Instagram þar sem Wilson er með milljónir fylgjenda.
Wilson, sem gerði garðinn frægan í Pitch Perfect myndunum, lék með MacInnes í söngleikjakvikmyndinni The Deb sem kom út árið 2024. En Wilson er einnig leikstjóri myndarinnar og meðframleiðandi.
Wilson sagði í færslum sínum að MacInnes hefði dregið til baka kvartanir um kynferðislega áreitni framleiðanda myndarinnar til þess að styrkja starfsferilinn sinn sem leikkona og söngkona.
MacInnes sagði að færslur Wilson hefðu skaðað hana. Hún hefði fengið yfir sig haturspósta og orðið að aðhlátursefni á netinu.
Wilson var að vonum ánægð með niðurstöðu dómstólsins. Hún þakkaði dómaranum og ástralska réttarkerfinu fyrir á samfélagsmiðlum og sagðist hlakka til að halda áfram ferli sínum.