Fókus

Lýsir Stokkhólmsheilkenninu sem hún upplifði með paparazzi-ljósmyndurum til áratuga

Mynd
Jennifer Garner. Mynd: Getty.

Leikkonan Jennifer Garner hefur lýst því hvernig henni líður gagnvart ljósmyndurum sem hafa verið hluti af lífi hennar í tvo áratugi og hvernig hún endaði á að mynda undarlegt samband við einn þeirra sem lagði sig fram um að ljósmynda fjölskyldu hennar.

Garner (54) lýsti erfiðleikatímabili í lífi sínu í hlaðvarpinu Shut Up Evan þann 21. júlí, þar sem fjallað var um hjónaband hennar við leikarann og leikstjórann Ben Affleck. Þau voru gift frá 2005 til 2018 og eiga þrjú börn saman, Violet, 20 ára, Seraphina, 17 ára, og Samuel, 12 ára.

Parið kynntist á tökustað kvikmyndarinnar Daredevil frá árinu 2003 og hefur sést margoft saman undanfarið með börnum sínum, og virðist sem þau nái vel saman í sameiginlegu foreldrahlutverki.

Þegar þau voru saman, var miklu meiri áhersla lögð á líf þeirra og Garner segir að þetta hafi jafnvel haft áhrif á annað fólk í kringum þau. Jafnvel öryggi þeirra.

Jennifer segist hafa verið mjög vön paparazzi-ljósmyndurunum eins og þeir eru kallaðir sem sitja fyrir fræga fólkinu til að ná óumbeðnum myndum af þeim og selja til slúðurmiðla, fjölmiðla eða tímarita. Segir hún það hafa verið tveir sem voru stöðugt að sitja um fyrir henni og segist hún hafa átt „mjög áhugavert samband“ við annan þeirra.

„Ég hef tvo ljósmyndara á hverjum degi sem hafa fengið mig úthlutaða í meira en 20 ár, 25 ár,“ sagði Garner. „Ég á mjög áhugavert samband við aðalljósmyndarann minn. Ég hef gert hvað sem er til að biðja hann um að fara, og á sama tíma berum við undarlega virðingu hvort fyrir öðru.“

„Við höfum átt nokkrar mjög raunverulegar stundir saman,“ sagði leikkonan. „Ég var elt af einhverjum sem, af einhverjum ástæðum, ég hélt að myndi meiða mig, og ég hljóp til ljósmyndarans vegna þess að ég þekkti hann og treysti honum, og ég vissi að hann og ég yrðum allt í lagi.“

Garner bætti við: „Það er eins konar Stokkhólmsheilkenni þarna og á sama tíma hef ég hringt í lögguna milljón sinnum vegna hans og spurt: Geturðu vinsamlegast gefið mér göngutúr í kringum hverfið með börnin mín og hundinn minn?“

 Þegar hún rifjaði upp þær stundir þar sem hún var umkringd fólki með myndavélar á þessum tíma sem hún lýsir sambandi sínu við þessa ljósmyndara, sagði hún: „Ef ég keyrði yfir á gulu ljósi, þá myndu 15 bílar fara yfir á rauða ljósinu fyrir aftan mig. Þeir myndu keyra upp á grasflöt fólks, jafnvel yfir brekku.“

Garner sagði síðan frá því þegar einn af skipuleggjendum fótbolta barna þeirra var beðinn um að „hætta við“ vegna ljósmyndara.

„Við vorum að reyna að fá litla krílið okkar til að spila fótbolta en félagið bað okkur um að hætta því það voru 20 bílar að koma,“ sagði hún. „Þetta snerist ekki bara um okkur, þetta var bara atvinnugrein sem var farin úr böndunum.“

Það voru þó ekki bara leikirnir, það voru tilvik þar sem það hefði hugsanlega getað komið í veg fyrir að börnin hennar leituðu læknisaðstoðar.

„Ef þú mætir og ert að reyna að komast til barnalæknis og ert með veikt barn á öxlinni og ert hræddur og kemst ekki inn um dyrnar vegna þess að ljósmyndarar loka fyrir þig aðkomunni, þá er eitthvað að því og börnin eru að gjalda fyrir.“

Hún rifjaði upp atvik þar sem ljósmyndarar voru hætta fyrir önnur börn í kringum hana og benti á að það hefði verið tími þar sem „börn voru að detta um koll þegar þau komu úr leikskólanum ut af ljósmyndurum sem voru svo áfjáðir í að komast til mín eða Ben, að reyna að komast til barnanna okkar“.

En hún var fljót að segja að ljósmyndar virtust hafa meiri áhuga á að ná myndum af  henni þegar hún væri með krökkunum, en ekki fyrrum eiginmanni hennar, né öðrum frægum andlitum sem hún segir að séu „frægari“ en hún.

Nú eru börnin hennar að mestu leyti fullorðin en áhugi ljósmyndara á lífi hennar heldur áfram.