Tíkin Betty sem varð vinsæl á samfélagsmiðlum vegna stærðar brjósta hennar er dáin. Betty var sögð vera með „stærstu brjóstin í Skotlandi.“
Eins og segir í umfjöllun breska blaðsins The Daily Star þá er tíkin Betty dáin. Hún var franskur bolabítur sem bjó í Skotlandi og sló í gegn á samfélagsmiðlum þegar birtust af henni myndir sem sýndu gríðarstór brjóst hennar.
Sagt var að Betty væri með „stærstu brjóstin í Skotlandi,“ og þá ekki látið fylgja hvort um væri að ræða stærstu tíkarbrjóstin eða stærstu brjóst nokkurs spendýrs þar í landi.
Það var eftir að mynd birtist af Betty óléttri með brjóstin stútfull af mjólk. Myndin var tekin rétt áður en Betty fór í keisaraskurð hjá dýralækni.
En Betty var með meira en bara stór brjóst. Að sögn eiganda síns, Elizabeth Durnan, var Betty einnig með stærsta hjartað.
Durnan greindi frá því að Betty hefði dáið fyrr í þessum mánuði. Hún dó í örmum eiganda síns eftir að hafa fengið heilablóðfall og var jörðuð umvafin ástvinum sínum þann 8. júlí í Glasgow.
„Hún var heitt elskuð af öllum sem þekktu hana – og öllu internetinu,“ sagði Durnan sem segir Betty hafa hjálpað henni í gegnum mikil veikindi, krabbamein og hjartasjúkdóma. En eiginmaður hennar gaf henni Betty fyrir átta árum vegna þess að þau gátu ekki eignast barn. „Fráfall hennar hefur skilið eftir sig stórt tómarúm. Við gerðum allt saman og hennar verður sárt saknað.“