Fókus

Hún var 17 ára á myndinni: Sakar Seinfeld-stjörnuna um óviðeigandi hegðun

Mynd
Courtney Stodden. Mynd/Getty

Bandaríska fjölmiðlakonan og raunveruleikastjarnan Courtney Stodden segir að leikarinn Jason Alexander, sem er þekktastur fyrir hlutverk sitt sem George Costanza í Seinfeld, hafi komið fram með óviðeigandi hætti við hana þegar hún var aðeins 17 ára.

Stodden greinir frá þessu í færslu á Instagram þar sem hún rifjar upp tökur á gamanatriði fyrir þáttinn The Donny Clay Show árið 2012. Þar kom hún fram ásamt þáverandi eiginmanni sínum, leikaranum Doug Hutchison, en Alexander lék spjallþáttastjórnanda.

News.co.au fjallar um málið.

Í færslunni segir Stodden að Alexander hafi ítrekað nuddað farsíma yfir brjóst hennar á meðan hann lét kynferðislega tvíræð ummæli falla. Stodden er fædd árið 1994 og var ekki orðin 18 ára þegar tökur á þættinum fóru fram.

Hún segir að Alexander hafi einnig grínast með að þegar hún yrði 18 ára myndi hann vilja fara með hana bak við sófa og „ná sínu fram“. Samkvæmt henni var Alexander jafnframt titlaður einn handritshöfunda atriðisins.

„Eftir því sem ég eldist verður mér sífellt óskiljanlegra hvernig þetta þótti í lagi,“ skrifar Stodden og segir að hún hafi ekki haft lagalegt vald til að ákveða hvort hún tæki þátt í atriðinu.

Mynd

„Fullorðnir skrifuðu undir samningana. Framleiðslan hélt áfram. Ég var eina barnið í herberginu,“ skrifar hún.

Stodden segir að þegar hún líti til baka sjái hún ekki gamanatriði heldur 17 ára stúlku sem hafi verið gerð að viðfangsefni kynferðislegra brandara fullorðinna.

„Fólk segir enn að ég hafi valið að vera þarna. En lagalega gat ég ekki tekið slíkar ákvarðanir sjálf. Það er einmitt kjarni málsins,“ skrifar hún.

Stodden var ung að árum þegar hún komst í sviðsljósið en hún var aðeins 16 ára þegar hún gekk í hjónaband með hinum þá fimmtuga leikara Doug Hutchinson. Í ljósi þess að móðir Stodden veitti samþykki sitt fyrir hjónabandinu var það metið löglegt. Þau skildu árið 2020 og vandaði hún honum ekki kveðjurnar eftir skilnaðinn og sakaði hann meðal annars um andlegt ofbeldi á þeim tíu árum sem þau voru gift.

Nú, þegar hún er eldri, reynslumeiri og sex árum eftir skilnaðinn við Hutchison, segir Stodden að það hafi reynst henni erfiðara – en ekki auðveldara – að skilja hvers vegna hún var beitt slíkri framkomu þegar hún var undir lögaldri.

Stodden segir að þótt hún geti ekki breytt því sem kom fyrir hana geti hún stigið fram núna í þeirri von að vernda aðra sem kunni að lenda í svipuðum aðstæðum.

„Ég get ekki breytt því sem kom fyrir mig, en ég get spurt sjálfa mig: „Hvernig gátu svo margir fullorðnir horft á barn og ákveðið að þetta væri ásættanlegt?“ Það er einmitt ástæðan fyrir því að ég stíg fram í dag,“ skrifaði hún.

„Börn eiga skilið lög sem vernda þau. Þau ættu ekki að þurfa að verða fullorðin áður en þau átta sig á því að lögin hefðu átt að vernda þau allan tímann.“