Fókus

Maskina kemur með ferskan andblæ í íslensku rokksenuna

Mynd
Maskina. Mynd: Bjarni Baldursson

Hljómsveikin Maskina er hressileg rokkhljómsveit sem kemur með ferskan andblæ í íslensku rokksenuna.

Hljómveitin sendi nýlega frá sér lagið Fallinn engill sem hlusta má á í spilaranum hér fyrir neðan. Stefnt er á plötuútgáfu og útgáfutónleika í haust eða vetur.

Mynd

„Hljómsveitin var stofnuð fyrir um tveimur árum síðan og höfum við æft vel saman og náð að tengjast hrikalega vel sem hljómsveit og vinir. Við höfum verið að vinna í efni og er stefnan sett á upptökur og klára plötuna í haust,“ segir Arnar Friðriksson, söngvari bandsins.

Hljómsveitina skipa: Arnar Friðriks – Söngur; Einar Máni Friðriksson – Gítar; Sigurður Stein Matthíasson – Trommur; Ágúst Benediktsson – Bassi